Kristjana hugar um heilsuna um páskana

Kristjana Steingrímsdóttir töfrar fram einstaka páskaveislu.
Kristjana Steingrímsdóttir töfrar fram einstaka páskaveislu. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Heilsu­kokk­ur­inn Kristjana Stein­gríms­dótt­ir bjó lengi í Lúx­em­borg en er nú flutt til Íslands. Í meira en ára­tug hef­ur hún haldið vin­sæl mat­reiðslu­nám­skeið þar sem holl­ust­an er í for­grunni. Hún töfraði fram grillað páskalamb ásamt góm­sætu meðlæti.

Kristjana hugar um heilsuna um páskana

Vista Prenta

Grillað lambafilet með kryd­d­jurtapestói

  • 750 g lambafilet

Kryd­d­jurtapestó

  • 1,5 dl ólífu­olía
  • 1 búnt basilíka (um 20 g)
  • ½ búnt stein­selja (um 10 g)
  • ½ búnt timí­an (um 10 g)
  • ½ búnt mynta (um 10 g)
  • 2 msk. léttristaðar kasjúhnet­ur
  • safi og börk­ur af hálfri sítr­ónu
  • 1 msk. hun­ang
  • ½ tsk. pip­ar
  • 1 tsk. salt

Aðferð

  1. Setjið allt fyr­ir kryd­d­jurtapestóið í mat­vinnslu­vél og maukið vel.
  2. Setjið um það bil þrjár mat­skeiðar af pestói á kjötið og látið mar­in­er­ast í um það bil eina klukku­stund.
  3. Grillið kjötið á heitu grilli í 2-3 mín­út­ur á hvorri hlið eða aðeins leng­ur ef þið viljið hafa það meira eldað.
  4. Berið lambið fram með grilluðu graskerssal­ati og mangó-salsa og af­gang­in­um af pestó­inu.
Hér má sjá lambakjötið með pestói áður en það var …
Hér má sjá lamba­kjötið með pestói áður en það var eldað. Ljós­mynd/​Kristjana Stein­gríms­dótt­ir
Prenta

Graskerssal­at með sal­atosti og döðlum

  • 1 grasker (butt­ernut squash), fræhreinsað og saxað í litla bita
  • smá ólífu­olía
  • salt og pip­ar eft­ir smekk
  • 1 msk. rót­argræn­metiskrydd­blanda frá Krydd­hús­inu
  • 1 box af grænu sal­ati
  • hand­fylli af kletta­sal­ati
  • 1 krukka sal­atost­ur
  • 4 msk. þurrkuð trönu­ber
  • nokkr­ar grein­ar timí­an
  • 10 stykki stein­laus­ar döðlur skorn­ar í litla bita
  • 1-2 msk góð ólífu­olía

Aðferð

  1. Setjið graskerið á bök­un­ar­plötu og skvettið yfir smá olífu­olíu, salti, pip­ar og rót­argræn­metiskrydd­blöndu frá Krydd­hús­inu.
  2. Bakið í 180° heit­um ofni í 25-30 mín­út­ur.
  3. Takið út og kælið í nokkr­ar mín­út­ur.
  4. Setjið sal­atið á disk, því næst bökuðu graskers­bit­ana, sal­atost, trönu­ber, timí­an, döðlur og ólífu­olíu.
Ljós­mynd/​Kristjana Stein­gríms­dótt­ir
Prenta

An­an­as-carpaccio

  • ¼ an­an­as
  • ½ límóna, safi og rif­inn börk­ur
  • nokk­ur vín­ber eða blá­ber
  • 1/​6 fersk­ur chili skor­inn í þunn­ar sneiðar
  • 3 cm engi­fer­rót rif­in
  • smá kórí­and­er gróft saxað
  • smá sprett­ur til skrauts
  • salt og pip­ar
  • skvetta af sítr­ónu­olíu

Aðferð

  1. Skerið ysta lagið af an­anasin­um og skerið svo í þunn­ar sneiðar og raðið á stórt fat/​disk.
  2. Rífið börk­inn af límón­unni og kreistið saf­ann yfir an­anassneiðarn­ar.
  3. Rífið engi­fer­rót yfir allt og stráið berj­um, chil­isneiðum og kórí­and­er yfir.
  4. Því næst smá salt, pip­ar og sítr­ónu­olía.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert