Lambaskankar eins og þeir gerast bestir

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Lambaskank­ar eru í miklu upp­á­haldi enda fátt sem topp­ar vel soðið eldaða skanka sem nán­ast detta af bein­in. Það er Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir, mat­ar­blogg­ari á Döðlur & smjör sem á heiður­inn að þess­ari upp­skrift sem gull­trygg­ir gleðilegt pákska­hald. 

Lambaskankar eins og þeir gerast bestir

Vista Prenta

Lambaskank­ar 

  • 4 lambaskank­ar
  • 2 msk. Bezt á lambið, krydd
  • 10-15 kart­öfl­ur
  • 6 gul­ræt­ur
  • 2 lauk­ar
  • 1-2 hvít­lauk­ar
  • 2 tsk. timj­an, þurrkað eða hand­fylli ferskt timj­an
  • 2 tsk. salt
  • 1 tsk. pip­ar
  • 1 lambakraft­ur, ten­ing­ur
  • 1 msk. tóm­at­púrra
  • 200 ml vatn

Finnið til eld­fast form með loki eða pott sem þolir að fara í ofn og stillið ofn a 150°c.

Byrjð á því að krydda kjötið og steikja það létt í 3-4 mín, til að brúna það.

Skerið græn­metið gróft niður og setjið í botn­inn á pott­in­um/​form­inu, kryddið með timj­an, salt og pip­ar. Setjið lambakraft, tóm­at­púrra og vatn í ílát og hitið ör­lítið í ör­bylgju­ofni, til þess að leysa upp kraft­inn. Hrærið vel í og hellið yfir græn­metið. Setjið þá lambaskank­ana yfir græn­metið, lokið pott­in­um/​form­inu og setjið inn í ofn í 3-4 klst.

Rauðvínssósa

  • 1 pk rauðvínssósa frá Toro
  • 200 ml vatn
  • 100 ml soð úr pott­in­um/​formi

Blandið öllu sam­an í pott og hrærið vel sam­an. Leyfið suðunni að koma upp, lækka und­ir og leyfa að sjóða í u.þ.b. 5 mín.

Takið skank­ana upp úr pott­in­um og deilið græn­met­inu á fjóra diska, setjið einn lambaskanka á hvern disk og hellið sósu yfir.

Ljós­mynd/​Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert