Ómótstæðilegar nýjungar frá FERM Living

Ljósmynd/Ferm Living

Við get­um ekki annað en látið freist­ast er við renn­um yfir nýj­ung­arn­ar frá FERM Li­ving. Hér er verið að setja mat­gæðing­inn í fyrsta sæti með smekk­leg­um vör­um sem aldrei fyrr.

Ný karafla, glös og skálar frá FERM Living.
Ný karafla, glös og skál­ar frá FERM Li­ving. mbl.is/​Ferm Li­ving

FERM slær sjald­an feilnótu er kem­ur að hús­búnaði og gera það held­ur ekki að þessu sinni. Nýj­ar vör­ur streyma frá fyr­ir­tæk­inu sem gleðja mat­gæðinga­augað og við sann­fær­um sjálfa okk­ur um að þetta „verðum við” að eign­ast.

Ný kampa­víns­glös, kanna og dess­ert skál­ar eru nýtt af nál­inni og kall­ast vöru­lín­an Oli. Oli er fram­leitt úr 50% end­urunnu gleri, þar sem litl­ar loft­ból­ur mynd­ast í gler­inu og ger­ir hvern og einn hlut ein­stak­an. Eins sjá­um við splúnku­nýtt borðstofu­borð og ein­stak­lega lögu­leg smjör­bretti og hnífa úr FSC-vottuðum og dökk­bæsuðum aski - sem veita hlýju á mat­ar­borðið, fyr­ir utan að þjóna hlut­verki. Það er hér sem að fag­ur­fræðin og virkn­in hald­ast í hend­ur.

Takið eftir smjörboxinu - það er geggjað.
Takið eft­ir smjör­box­inu - það er geggjað. mbl.is/​Ferm Li­ving
Nýtt borðstofuborð!
Nýtt borðstofu­borð! mbl.is/​Ferm Li­ving
Löguleg smjörbretti úr dökkbæsuðum aski.
Lögu­leg smjör­bretti úr dökk­bæsuðum aski. mbl.is/​Ferm Li­ving
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert