Mætti til Maldíveyja og gifti sig

Jamie Oliver og Jools konan hans, hafa verið saman í …
Jamie Oliver og Jools konan hans, hafa verið saman í 23 ár. mbl.is/Facebook

Fyrstu frétt­ir af Jamie Oli­ver hér á páska­dags­morg­un, voru draum­kennd­ar brúðkaups­mynd­ir á fjar­lægri strönd - en nakti kokk­ur­inn gift­ist sinni heitt­elskuðu í annað sinn og birti mynd­ir á Face­book síðu sinni.

Eft­ir 23 ára sam­band og fimm börn­um síðar, ákváðu Jamie og Jools að end­ur­nýja heit­in áður en elstu börn­in byrja að yf­ir­gefa hreiðrið. Þegar þau giftu sig í fyrsta sinn, þá var öllu fjöl­miðlafári haldið í fjar­lægð - á meðan í dag, birta þau sjálf mynd­ir úr at­höfn­inni. Þau völdu litla strönd á Maldív­eyj­um, þar sem tur­kís blár sjór­inn er allt um kring og fjöl­skyld­an sól­kysst og sæl eins og sjá má á meðfylgj­andi mynd­um.

mbl.is/​Face­book
mbl.is/​Face­book
mbl.is/​Face­book
mbl.is/​Face­book
mbl.is/​Face­book
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert