Nýjasta pítsuæðið á Íslandi

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér gef­ur að líta pítsu úr smiðju Berg­lind­ar Heiðars á Gotteri.is en þar not­ar hún burrata-ost sem þykir eitt það allra besta sem hægt er að setja á pítsu og skil­grein­ist nú sem nýj­asta æðið.

„Burrata-ost­ur er einn af þess­um sem læt­ur mann kikna í hnján­um. Það er svo gott að nota hann í ýmsa mat­ar­gerð og á pítsur er hann guðdóm­leg­ur. Ég smakkaði fyrst burrata-ost í Friðheim­um fyr­ir nokkr­um árum og eft­ir það varð ekki aft­ur snúið. Það hef­ur hins veg­ar reynst þraut­in þyngri að nálg­ast þessa dá­semd en nú hef­ur Mjólk­ur­sam­sal­an hafið sölu á þess­um osti í lausa­sölu og ég mæli með að þið laumið ykk­ur alltaf í eina ef ekki fleiri dós­ir þegar hann er til í versl­un­um!“

Nýjasta pítsuæðið á Íslandi

Vista Prenta

Burrata-pítsa

Upp­skrift fyr­ir eina pítsu (fyr­ir 1-2 manns)

  • Pítsu­deig að eig­in vali
  • pítsusósa að eig­in vali
  • óreg­anó
  • pítsu­ost­ur frá Gott í mat­inn
  • grænt basilpestó (nokkr­ar te­skeiðar)
  • rautt chil­ipestó (nokkr­ar te­skeiðar)
  • kletta­sal­at (1 lúka)
  • 100 g piccolo-tóm­at­ar (skorn­ir niður)
  • 1 burrata-kúla frá Gott í mat­inn
  • góð ólífu­olía
  • bal­sam­gljái
  • fersk basilíka (söxuð)

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 220°C og fletjið deigið út þar til það verður um 30 cm í þver­mál.
  2. Komið deig­inu fyr­ir á bök­un­ar­plötu, smyrjið pítsusósu yfir allt og setjið pítsu­ost og óreg­anó eft­ir smekk, brjótið næst aðeins upp á kant­ana.
  3. Bakið í um 15 mín­út­ur eða þar til kant­arn­ir gyll­ast vel og takið þá úr ofn­in­um.
  4. Setjið smá grænt og rautt pestó hér og þar um pítsuna, næst kletta­sal­at á hana miðja og dreifið úr tómöt­un­um.
  5. Komið þá burrata-kúl­unni fyr­ir á miðjunni og setjið ólífu­olíu og bal­sam­gljáa yfir allt og loks smá basiliku.
Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert