Besta Settið aftur í verslanir

Nói Síríus held­ur áfram sam­starfi sínu við Bestu deild­ina í knatt­spyrnu og af því til­efni er Besta Settið á leiðinni í versl­an­ir á ný. Um er að ræða Síríus Pralín súkkulaði, fyllt með Eitt Sett lakk­rís­fyll­ingu.

„Sam­starfið við Bestu deild­ina sem hófst í fyrra gekk glimr­andi vel og Besta Settið, sem var fram­leitt í tak­mörkuðu magni í til­efni sam­starfs­ins, féll svo sann­ar­lega vel í kramið hjá ís­lensk­um neyt­end­um,“ seg­ir Alda Björk Lar­sen, markaðsstjóri Nóa Síríus. „Við höf­um fengið marg­ar fyr­ir­spurn­ir um þessa skemmti­legu vöru og greini­lega marg­ir sem bíða henn­ar með eft­ir­vænt­ingu. Því er ein­stak­lega gam­an að geta boðið hana aft­ur og því ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að sæl­ker­ar lands­ins njóti fót­bolt­ans í sum­ar með Besta Settið við hend­ina.“

Besta Settið er hluti af Eitt Sett vöru­lín­unni og það er kannski ekki að undra góðar viðtök­ur því Eitt Sett hef­ur lengið verið eitt vin­sæl­asta sæl­gæti þjóðar­inn­ar. Það var eitt fyrsta fjölda­fram­leidda sæl­gætið á Íslandi sem sam­einaði mjúk­an lakk­rís og rjómasúkkulaði.

Eitt Sett fjöl­skyld­an hef­ur stækkað ört und­an­farið og Besta Settið er sjö­unda út­gáf­an af þessu vin­sæla góðgæti að því að fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert