Kaffikokteillinn sem er að gera allt vitlaust

Við erum ekk­ert að grín­ast er við segj­um ykk­ur frá nýj­asta trend­inu á sam­fé­lags­miðlun­um. Hér um ræðir espresso mart­ini kokteil, toppaður með par­mes­an osti - en þetta sáum við ekki fyr­ir.

In­sta­gram barþjónn­inn Tyler Ziel­inski, vill meina að hér sé um af­bragðsblöndu að ræða og að við eig­um ekki að dæma bók­ina eft­ir káp­unni. Sam­setn­ing­in sé ekki eins óvenju­leg og við höld­um því í mörg­um menn­ing­ar­heim­um er til dæm­is kaffi og ost­ur, nokkuð al­geng pör­un. Eins sjá­um við hið þekkta tiram­isu með mascarpo­ne og espresso á Ítal­íu. svo eitt­hvað sé nefnt. Tyler seg­ir jafn­framt að hér sé ekki besti drykk­ur í heimi á boðstóln­um, held­ur drykk­ur sem á eft­ir að koma fólki skemmti­lega á óvart.

Við mæl­um með að fylgja Tyler á In­sta­gram, þar sem hann deil­ir frétt­um og fróðleik um kokteila, fal­leg­um mynd­um af drykkj­um og ferðalög­um út um all­an heim - en þess má geta að Tyler er með yfir 13 þúsund fylgj­end­ur og skrif­ar m.a. fyr­ir tíma­ritið Food & Wine.

 


Espresso martini með parmesan osti - gjörið svo vel.
Espresso mart­ini með par­mes­an osti - gjörið svo vel. mbl.is/​Tyler Ziel­inski
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert