Einfaldar leiðir til að spara í búðinni

Þessi kona er með hlutina á hreinu er hún fer …
Þessi kona er með hlutina á hreinu er hún fer út að versla. mbl.is/

Mat­ur hef­ur hækkað! Hér erum við ekk­ert að fara með stór­frétt­ir hvað það varðar, en við get­um reynt að rýna bet­ur í mat­ar­körf­una og sparað aur­inn á ýms­um stöðum ef við vilj­um. Það eru leiðir til að minnka kostnaðinn og eitt af þeim er að láta ekki freist­ast er við renn­um fram­hjá kök­um og öðrum sæt­ind­um í búðinni - en þó fyrst og fremst að fara ekki á fastandi maga í búðina.

Keyptu græn­meti í lausu
Best er að kaupa græn­meti í lausu, en ekki það sem eru pakkað mörg inn sam­an. Þú ein­ung­is það magn sem þig vant­ar hverju sinni og end­ar ekki með að láta rest­ina skemm­ast inn í ís­skáp.

Sleppa kjöt­inu?
Prófaðu þig áfram með upp­skrift­ir sem inni­halda ódýr­ara kjöt­meti. Eða slepptu kjöt­inu ein­hverja daga í viku - það mun koma þér á óvart hversu mikið mat­arkarf­an á eft­ir að lækka.

Fransk­ar kart­öfl­ur
Ein hug­mynd er að út­búa sjálf­ur sín­ar frönsku kart­öfl­ur með því að skera venju­leg­ar kart­öfl­ur niður í strimla og baka í ofni - og með þeim sölt­um og krydd­um sem hug­ur­inn girn­ist.

Merkja­vör­ur
Það eru merkja­vör­ur í mat eins og öllu öðru. Þá er gott að hafa í huga að við þurf­um ekki að kaupa dýr­ustu vör­urn­ar hverju sinni, það má spara með því að kaupa sömu vöru frá öðrum fram­leiðanda og er ekk­ert síðri í hvers­dags­mat­inn.

Hrís­grjóna­poki
Keyptu stóra poka af hrís­grjón­um frek­ar en litla, það er ódýr­ara þegar uppi er staðið þar sem hrís­grjón geym­ast svo til að „ei­lífu”.

Fros­in ber
Fros­in ber eru ekk­ert verri en fersk ef þú ert til dæm­is að fara nota þau í smoot­hie - þá eru frosnu ber­in betri ef eitt­hvað er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert