Hvernig kampavín áttu að velja?

mbl.is/Colourbox

„Aðeins þeir sem skort­ir ímynd­un­ar­afl, geta ekki fundið tæki­færi á að drekka kampa­vín” – þessi fleygu orð sagði Oscar Wilde og hafði svo sann­ar­lega rétt fyr­ir sér.

Það er hefð fyr­ir því að drekka kampa­vín við hátíðleg til­efni eins og stóraf­mæli, brúðkaup og þess hátt­ar. En við þurf­um ekki alltaf sér­stakt til­efni til að njóta flau­elmjúka víns­ins - því kampa­vín hent­ar með flest öll­um mat.

Kampa­vín í aðal­rétt
Ef þú ætl­ar að mat­reiða rétt sem pass­ar vel með kampa­víni, þá snýst það um að finna rétt jafn­vægi á milli þess súra og salta, og bragðnót­ur kampa­víns­ins. Vínið hent­ar til dæm­is vel með tæl­ensk­um mat ef þú held­ur aðeins aft­ur að þér í sterku krydd­un­um. Sítrusávext­ir eða sós­ur sem inni­halda vín­e­dik eru ekki hrá­efni sem þú ætt­ir að leit­ast eft­ir, í staðinn skaltu velja mild­ari rétti - til dæm­is sjáv­ar- eða græn­met­is­rétti þar sem kampa­vínið get­ur lyft bragðlauk­un­um á flug.

Kampa­vín í eft­ir­rétt
Láttu kampa­vínið eiga sig þegar kem­ur að desert­in­um, þar sem sæt­an í eft­ir­rétt­in­um get­ur stolið bragðinu í vín­inu.

  • Brut Nature - þurr­asta vínið (ekki viðbætt­ur syk­ur)
  • Extra Brut - mjög þurrt
  • Brut - þurrt
  • Extra Dry - hálf þurrt
  • Sec - ör­lítið sætt
  • Demi-SEC - hálf sætt
  • Doux - sætt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert