Ídýfan sem bjargaði veislunni

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Við vit­um að mat­ur er manns meg­in og allt það en sjald­an höf­um við heyrt að mat­ur bjargi heilu viðburðunum eins og gerðist um helg­ina. Þessi ídýfa kem­ur úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars á Gotteri.is og er sjúk­lega góð þótt við segj­um sjálf frá. Mat­ar­vefn­um barst frá­sögn frá les­anda sem prófaði upp­skrift­ina og bauð upp á hana í boði um helg­ina. Að sögn les­and­ans vakti ídýf­an því­líka lukku að um fátt annað var rætt í boðinu og stóð hún uppi sem sig­ur­veg­ari kvölds­ins. Sér­deil­is góð meðmæli það!

Ídýf­an sem bjargaði veisl­unni

Vista Prenta

Rjóma­kennd ostaí­dýfa sem ríf­ur í

Osta­blanda

  • 150 g fetakubb­ur frá Gott í mat­inn
  • 150 g rjóma­ost­ur til mat­ar­gerðar frá Gott í mat­inn
  • 60 g grísk jóg­úrt frá Gott í mat­inn
  • 2 tsk. sítr­ónusafi

Aðferð:

  1. Setjið allt í bland­ara/​mat­vinnslu­vél og maukið sam­an.
  2. Smyrjið blönd­unni næst í nokkuð víða skál/​fat sem er um 20-25 cm í þver­mál, hellið toppn­um yfir (sjá upp­skrift að neðan) og njótið með tortilla flög­um.

Topp­ur

  • 50 ml ólífu­olía
  • 2 x vor­lauk­ur (saxaður)
  • 30 g furu­hnet­ur
  • 2 x hvít­lauksrif (rif­in)
  • 1-2 tsk. chilli flög­ur
  • ½ tsk. gróft salt

Aðferð:

  1. Hitið ol­í­una vel á pönnu og hellið öllu nema grófa salt­inu sam­an við þegar olí­an er orðin vel heit, lækkið þá hit­ann al­veg niður og leyfið að mýkj­ast í um eina mín­útu.
  2. Leyfið blönd­unni að standa í nokkr­ar mín­út­ur á meðan mesti hit­inn fer úr ol­í­unni og hellið síðan óreglu­lega yfir osta­blönd­una.
  3. Stráið að lok­um grófu salti yfir allt og njótið með tortilla flög­um.
Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert