Ferskt heimagert pasta er algjört lostæti með góðri sósu eða fyllingu. Í Flórens fór blaðamaður á námskeið til að læra handtökin af alvöru ítölskum kokki.
Í miðborg Flórens er eitthvað fyrir öll skynfæri, ekki síst bragðlaukana. Ítalskur matur er jú alveg einstaklega góður; um það geta flestir verið sammála! Ferðamenn, sem sækja heim þessa gömlu og gullfallegu borg, geta alls staðar fundið dásamlegan mat og er borgin þekkt fyrir svokallaða Fiorentina-steik sem er borin fram á beini, nánast hrá. En auðvitað er alls staðar hægt að fá pastarétti af öllum gerðum, hvern öðrum betri.
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Eitt af því sem ferðamenn geta skemmt sér við í Flórens er að fara á matreiðslunámskeið og valdi undirrituð pastanámskeið ásamt systur sinni Margréti og móðurinni Ragnhildi. Mæðgurnar mættu stundvíslega til hans Giacomo hjá Pastamania og stilltu sér upp við langborð ásamt fjölskyldu frá Sviss og fimm Bandaríkjamönnum frá Texas. Allir fengu plastsvuntu, hundrað grömm af sérstöku hveiti í skál, eitt egg og kökukefli. Meira þarf í raun ekki til að búa til sitt eigið pasta.
Giacomo var sáttur við tagliatelle nemendanna.
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Auðveldara en maður heldur
Ítalski kokkurinn Giacomo kunni sannarlega handtökin, enda hafði hann lært pastagerð af ömmu sinni þegar hann var smástrákur. Hann kenndi áhugasömum túristum að hræra, hnoða, fletja út og skera þannig að úr varð hið fínasta tagliatelle, ravíólí og tortellini. Reyndar fengum við aðstoð við skurðinn á tagliatelle með sérstökum trékössum með strengjum til að skera í jafna strimla. En ekkert mál er að brjóta deigið varlega saman og skera í strimla. Eða bara að búa til ravíólí, fylla það af osti og loka. Yngsti neminn, sjö ára gutti, var alveg jafn flinkur og við fullorðna fólkið, þannig að pastagerð er eitthvað sem hægt er að gera með allri fjölskyldunni.
Milo litli var ánægður með afraksturinn.
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Á meðan var útbúin tómatsósa og smjörsósa í eldhúsinu og eftir að búið var að sjóða pastað, var sest niður að snæðingi. Skemmst er frá því að segja að maturinn var upp á tíu og rann ljúflega niður. Pastað var sérlega gott eftir alla vinnuna, sem var nú ekki erfið. Að búa til sitt eigið pasta er mun auðveldara en maður heldur. Uppskriftirnar frá Giacomo má svo finna hér á síðunni og nú er bara að bretta upp ermar og prófa!
Ferðamennirnir nutu þess að búa til pasta saman á námskeiðinu í Flórens.
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Alvöru bolognese-ragú - fyrir 4
Uppskrift:
- 300 g nautahakk
- 150 g beikon (helst pancetta-beikon)
- 50 g sellerí
- 50 g gulrætur
- 50 g laukur
- 300 g tómatsósa fyrir pasta (t.d. passata)
- ½ glas hvítvín
- ½ glas mjólk
- salt og pipar
- 3 msk ólífuolía
Aðferð:
- Skerið beikon og grænmeti í litla bita og hafið tilbúið til hliðar.
- Bræðið beikonið í pönnu á miðlungshita.
- Bætið út í selleríi, lauk og gulrótum, ásamt þremur matskeiðum af olíu.
- Bætið síðan hakkinu saman við og brúnið.
- Hellið hvítvíni saman við og látið sjóða upp. Haldið áfram að elda og hrærið vel og bætið síðan tómatsósunni saman við. Látið malla á lágum hita í tvo klukkutíma með loki á pönnunni. Ef sósan þykknar um of má bæta svolitlu vatni út í. Smakkið til með salti og pipar.
- Gott er að bæta út í smávegis mjólk til að fá sýruna úr sósunni. Berið fram með góðu pasta og stráið svo parmesan yfir.
Ítölsk tómatsósa
Uppskrift:
- 2 msk. ólífuolía
- 2 hvítlauksrif, marin
- 500 g passata-sósa
- 4 basillauf
- 2 tsk. salt
Aðferð:
- Hitið olíu í stórri pönnu og bætið út í hvítlauknum og eldið á lágum hita þar til hann hefur mýkst.
- Bætið út í passata-sósunni og eldið í nokkrar mínútur. Bætið þá basil út í.
- Saltið vel og látið malla í 20 mínútur. Sósan hentar vel með alls kyns pasta.
Hér er frábær fylling fyrir ravíólí eða tortellini
Uppskrift:
- 200 g ferskur ricotta-ostur
- 100 g parmesan (24 mánaða)
- 1 msk. múskat eða 1 msk. truffluolía
Aðferð:
- Blandið saman ostunum og bætið svo við múskati eða truffluolíu.
- Sprautið fylllingu varlega á annan helming fernings, bleytið kantana með smá vatni, leggið annan ferning yfir og lokið með því að þrýsta saman.
- Sjóðið í vel söltuðu vatni í örfáar mínútur og berið fram með smjörsósu eða tómatsósu sem finna má á síðunni.
Smjör- og salvíusósa
Uppskrift:
- 100 g smjör í bitum
- 4 lauf af salvíu, gróflega skorið
- ½ tsk salt
Aðferð:
- Bræðið smjör í stórri pönnu yfir miðlungshita.
- Hitið í 3-4 mínútur og hrærið stanslaust þar til allt er bráðið.
- Hrærið þá salvíu saman við og saltið og takið strax af hitanum. Sósan hentar vel með alls kyns pasta.
Slegið var upp veislu að námskeiði loknu og bragðaðist maturinn unaðslega vel.
Ásdís Ásgeirsdóttir