Verslunin Hagkaup er orðin 64 ára en hún var stofnuð af Pálma Jónssyni 1959. Af því tilefni var slegið upp teiti í Sambíóunum í Kringlunni þar sem nýrri auglýsingaherferð var fagnað.
„Við unnum þessar auglýsingar með auglýsingastofunni Pipar og rauði þráðurinn í auglýsingunni er að fara í gegnum sögu Hagkaups og sýna hvernig búðin hefur breyst á þessum árum. Stærsta breytingin er auðvitað sú að hér áður vorum við leiðandi í fatasölu á Íslandi en í dag er fatnaður í miklum minnihluta og nú er það matvara, snyrtivara og leikföng sem eru stærst,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir markaðs-og upplifunarstjóri verslunarinnar.
Hún segir að afmælisárið verið nýtt til þess að þróa ýmsar nýungar áfram. Ný lína af Hagkaups-sloppnum sáluga er þó ekki þar á meðal.