Áhrifavaldurinn góðkunni, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, töfraði á dögunum fram ljúffengar enchiladas og deildi uppskriftinni með fylgjendum sínum á Instagram.
Rétturinn er í senn einfaldur og bragðgóður, en það besta er þó hve auðvelt það er að leika sér með mismunandi hráefni.
Enchiladas að hætti Guðrúnar Veigu
Hráefni:
- 1 pakki af nautahakki
- 1 dós af nýrnabaunum
- 1 bréf taco-krydd
- Góð skvetta af Siracha-sósu
- 2-3 msk salsasósa
- Blaðlaukur
- Tortilla-pönnukökur
- Rifinn ostur
- Ostasósa
- Sýrður rjómi
- Guacamole (tilbúið eða heimagert)
- Nachos-flögur
Aðferð:
- Byrjaðu á því að hita ofninn á 180°C.
- Hitaðu pönnu á miðlungsháum hita. Settu hakk út á pönnuna og steiktu ásamt taco-kryddi, góðri skvettu af Siracha-sósu, 2-3 msk salsasósu, nýrnabaunum og blaðlauk.
- Taktu tortilla-pönnukökur og smyrðu þær með ostasósu áður en hakkblöndunni er bætt inn í pönnukökuna og rifnum osti stráð yfir.
- Rúllaði pönnukökurnar upp og raðaðu þeim í eldfast mót.
- Bættu rifnum osti yfir pönnukökurnar og settu eldfasta mótið inn í ofn þar til osturinn ofan á pönnukökunum hefur bráðnað.
- Berðu fram ljúffengar enchiladas með nachos-flögum, salsasósu, sýrðum rjóma og guacamole.