Jana sviptir hulunni af girnilegum vikumatseðli

Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, matgæðingur og heilsumarkþjálfi býður …
Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, matgæðingur og heilsumarkþjálfi býður upp á Vikumatseðilinn. mbl.is/Hákon Pálsson

Kristjana Stein­gríms­dótt­ir, alla jafna kölluð Jana, er mik­ill mat­gæðing­ur auk þess sem hún er líka heil­su­markþjálfi. Það tvennt fer vel sam­an, því kræs­ing­ar sem hún eld­ar og fram­reiðir eru holl­ar og ótrú­lega girni­leg­ar. Jana býður upp á vikumat­seðil­inn að þessu sinni sem er hinn girni­leg­asti og mun gleðja alla mat­gæðinga.

Jana er flutt heim til Íslands eft­ir að hafa búið er­lend­is og blómstr­ar í því sem henni finnst skemmti­leg­asta að gera. „Lífið er ynd­is­legt og við fjöl­skyld­an erum að verða búin að búa hérna á Íslandi í 1 ár eft­ir að hafa búið í 15 ár í Lúx­em­borg. Þar átti ég hlut í heilsu veit­ingastaðnum Happ og þar eldaði ég ein­tóma holl­ustu í tæp 12 ár.  Einnig er ég heil­su­markþjálfi og hitti kúnna ásamt því að vera með ótelj­andi af nám­skeiðum um hópefli á vinnu­stöðum og mat­reiðslu­nám­skeiðum í heima­hús­um í Lúx­em­borg meðan ég bjó úti Ég er ein­mitt að byrja að vera með slík nám­skeið hérna á Íslandi og var með fyrsta mat­reiðslu­nám­skeiði mitt síðastliðinn föstu­dag sem var al­veg ótrú­lega skemmti­legt og dá­sam­legu kon­urn­ar sem voru lærðu hell­ing af nýj­ung­um og skemmtu sér mjög vel,“ seg­ir Jana.

Ný upp­skrift­asíða

Jana hef­ur ekki setið auðum hönd­um eft­ir að hún kom heim. „Í vet­ur var ég gesta­kokk­ur á Satt veit­ingastaðnum á Hót­el Reykja­vík Natura í 12 vik­ur sem var mjög skemmti­legt og þar var ég með allskon­ar ný salöt sem við buðum upp á, á þeirra frá­bæra hlaðborði.“

Jana svipti hul­unni af nýj­asta verk­efn­inu sínu á dög­un­um. „Um helg­ina opnaði ég heimasíðuna mína jana.is þar sem ég mun deila heilsu­upp­skrift­un­um mín­um og gefa fólki hug­mynd­ir af holl­um og auðveld­um rétt­um og upp­skrift­um. Mér finnst gam­an að elda og búa til nýj­ar upp­skrift­ir og reynd­ar erum við öll þannig í fjöl­skyld­unni og eld­um mjög mikið sam­an. Mér finnst lang skemmti­leg­ast að gera lit­skrúðug salöt og dress­ing­ar. Það er svo gam­an að prófa nýj­ar sam­setn­ing­ar og nýj­ar krydd­blönd­ur.“

„Mér finnst mjög skemmti­legt að deila því sem ég er að gera á Insta­gram reikn­ingnum mín­um @jan­ast  og sé að það er rosa­leg­ur áhugi fyr­ir bættri holl­ustu hjá fólki.  Ég fæ dag­lega skemmti­leg komm­ent og heyri frá fólki sem er að prófa sig áfram og er að prófa upp­skrift­irn­ar mín­ar. Ef ein­hverj­um vant­ar smá pepp til að bæta heils­una, eða vant­ar bara ein­hverj­ar nýj­ar hug­mynd­ir, þá ætti hinn sá sami endi­lega að hafa sam­band við mig á jana@jana.is.“

Vikumat­seðill­inn kunn­gerður

Jana setti sam­an vikumat­seðil­inn fyr­ir les­end­ur Mat­ar­vefs­ins og er kom­in í sum­argír­inn. „Nú er al­veg að koma sum­ar og erum við far­in að grilla meira og  ég er aðeins að fara í létt­ari öðru­vísi og meiri salöt. En á vet­urna elska ég að gera allskyns súp­ur og pot­trétti sem ylja í kuld­an­um.“

Lax með tælensku ívafi sem gleður bragðlaukana.
Lax með tæl­ensku ívafi sem gleður bragðlauk­ana. Ljós­mynd/​Berg­lind Guðmunds

Mánu­dag­ur – Ljúf­feng­ur lax með tæl­ensku ívafi

„Mánu­dag­ar eru langoft­ast fiski­dag­ar hjá okk­ur og hvergi betri fisk að fá en hérna á Íslandi. Hér er tæl­ensk laxasnilld með tahini límónusal­ati sem við erum mjög hrif­in af.“ 

Matarmikið salat með spennandi kryddum sem gefa lífinu lit.
Mat­ar­mikið sal­at með spenn­andi krydd­um sem gefa líf­inu lit. Ljós­mynd/​Jana

Þriðju­dag­ur – Mat­ar­mikið sal­at með spenn­andi krydd­um

Ég elska að leika mér með alls kon­ar brögð og blandað alls kyns sam­an og þetta sal­at geri ég oft og létt­sýð egg með ef ein­hverj­ir í fjöl­skyld­unni vilja aðeins meira af próteini. Kryddaða blóm­kálið og döðlurn­ar eru svo góðar sam­an og mæli ég svo með að prófa þetta sal­at.“

Girnileg súpa með tælensku yfirbragðið.
Girni­leg súpa með tæl­ensku yf­ir­bragðið. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Miðviku­dag­ur – Him­nesk tæl­ensk súpa

Þar sem ég elska sund­laug­arn­ar hérna á Íslandi för­um við hjón­in nán­ast dag­lega í sund og mér finnst ótrú­lega þægi­legt að henda í allskon­ar súp­ur, þá geri ég þær oft­ast fyrripart dags og við hjón­in skell­um okk­ur í sund seinnipart­inn og biðjum stelp­urn­ar að hita bara upp rétt áður en við kom­um heim.

Hér er boðið upp á þorsk með allskonar góðgæti.
Hér er boðið upp á þorsk með allskon­ar góðgæti. Ljós­mynd/​Dröfn

Fimmtu­dag­ur – Ljúf­feng­ur þorsk­rétt­ur

Þenn­an þorsk­rétt hef ég gert svo oft og all­ir sem smakka hann elska hann. Ég gerði hann ein­mitt fyr­ir 30 manna hóp úti í Lúx­em­borg einu sinni þegar ég sá um garðveislu fyr­ir kunn­ingja mína þar og sló hann al­gjör­lega í gegn.

Föstudagar eru góðir fyrir heimagerðar pitsur.
Föstu­dag­ar eru góðir fyr­ir heima­gerðar pitsur. Ljós­mynd/​Snorri Guðmunds­son

Föstu­dag­ur – Heima­gerð pítsa með æðis­leg­um botni

Síðustu árin hafa föstu­dags­kvöld­in langoft­ast verið pitsa kvöld hjá okk­ur og sér­stak­lega eft­ir að við feng­um okk­ur pitsaofn fyr­ir nokkr­um árum.  Maður­inn minn og ein af stelp­un­um sjá að mestu leyti um þetta kvöld þar sem þau gera deigið, sós­una og pitsurn­ar alltaf sam­an. Upp­á­halds pitsan mín er trufflupitsa en þessi upp­skrift hérna er svipuð og við not­um hjá okk­ur og ég er svo sam­mála um að setja bara lítið og góð hrá­efni á hverja pitsu og lofa þeim að njóta sín í botn.

Laugardagskvöld eru fullkomin fyrir humarveislu.
Laug­ar­dags­kvöld eru full­kom­in fyr­ir humar­veislu. Ljós­mynd/​Aðsend

Laug­ar­dag­ur – Humar­veisla og meðlæti sem full­komn­ar máltíðina

Við elsk­um að fá góða vini í mat og hlökk­um til að geta verið meira úti og grillað í sum­ar, ég geri nú oft­ast nokk­ur salöt svo með matnum og þá væri þetta skemmti­legt með humr­in­um

Sumarlegt salat á vel við í humarveisluna.
Sum­ar­legt sal­at á vel við í humar­veisl­una. Ljós­mynd/​Aðsend
Ómótstæðilegur grillaður kjúklingur toppaður með girnilega meðlæti
Ómót­stæðileg­ur grillaður kjúk­ling­ur toppaður með girni­lega meðlæti Ljós­mynd/​Aðsend

Sunnu­dag­ur  Hun­angsristaður kjúk­ling­ur með hvít­lauk og lavend­er

Á sunnu­dög­um för­um við oft í lang­ar göng­ur eða not­um dag­inn í ein­hvers kon­ar úti­vist og þá er gott að vera búin að græja mat sem þarf svo bara að stinga inn i ofn og hita þegar við kom­um heim. Ég elska heil­an kjúk­ling með alls kon­ar græn­meti og allt er eldað sam­an í stór­um potti inni í ofni. Þessi upp­skrift er mjög girni­leg og ég ætla að prófa hana fljót­lega.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert