Piparminta er afar fjölbreytt kryddjurt sem gleður bæði auga og munn á marga vegu. Mintan er mjög fersk á bragðið og gefur sérstakan ilm. Hún er mikið notuð í matargerð, sérstaklega í Englandi og Ameríku, og í raun um heim allan í dag. Í Englandi þykir minta ómissandi með lambakjöti og er orðin afar vinsæl hér á landi með grilluðum mat. Í Englandi er mintuhlaup oft borið fram með lambakjöti en hér á landi er oft útbúin dressing með mintu. Hér á landi nýtur mintan æ meiri vinsælda og á veitingastöðum er hún mikið notuð í matar- og eftirréttagerð.
Minta er einnig góð í sósur og salöt, hún kemur með sumarlegt og frískandi bragð. Salat með mintu á vel við með grilluðum mat. Hún er líka mikið notuð í drykki, sérstaklega kokteilagerð, og margir vinsælustu kokteilarnir innihalda mintu eða eru skreyttir með mintu. Minta í ferskt vatn og sódavatn gefur líka gott bragð og útlit og vatnið verður girnilegra.
Minta er líka vinsæl sem bragðbætir og ferskt skraut á kökur og ábætisrétti. Minta og ís eru líka fullkomin tvenna. Þú ættir því alltaf að eiga mintu í ísskápnum eða í kryddjurtabarnum því hún gleður og bragðbætir lífið á marga vegu þegar njóta á matar og drykkjar.