Hver er þjóðarréttur Englendinga?

Djúpsteiktur fiskur og franskar eða „fish & chip“ er þjóðarréttur …
Djúpsteiktur fiskur og franskar eða „fish & chip“ er þjóðarréttur Englendinga og nýtur mikilla vinsælda. Samsett mynd

Fisk­ur og fransk­ar eða „fish & chips“ er alltj­ent nefnd­ur þjóðarrétt­ur Eng­lend­inga. Íslensk­ir fiskút­flytj­end­ur hafa lagt lóð sín á vog­ar­skál­arn­ar til að Eng­lend­ing­ar verði ekki uppiskroppa með fisk­meti eins lengi og elstu menn muna. Víða á Bret­lands­eyj­um má finna sölu­bása, skyndi­bitastaði og veit­inga­hús sem selja rétt­inn og er The Ma­yf­a­ir Chippy þar eng­in und­an­tekn­ing.

The Ma­yf­a­ir Chippy er aðlaðandi hverf­is­veit­ingastaður sem býður upp á marg­verðlaunaða „fish & chips“ rétti ásamt úr­vali af öðrum fisk­rétt­um, ostr­um, krabba og kræk­ling. Fátt þykir Bret­un­um betra en klass­íski rétt­ur­inn þeirra sem kall­ast á frum­mál­inu „fish & chips og þykir nostal­g­ísk­ur þæg­inda­mat­ur hjá bresk­um þegn­um. Ma­yf­a­ir Chippy legg­ur áherslu á frá­bæra fisk­rétti, þar sem ein­göngu er boðið upp á fersk­ustu hrá­efn­in sam­kvæmt ströngustu stöðlum sem völ er á.

Þjóðarréttur Englendinga nýtur ávallt jafnmikilla vinsæla og hann borinn fram …
Þjóðarrétt­ur Eng­lend­inga nýt­ur ávallt jafn­mik­illa vin­sæla og hann bor­inn fram með þrem­ur teg­und­um af sósu á veit­ingastaðnum The Ma­yf­a­ir Chippy. Skjá­skot/​In­sta­gram

Sérstaðan „fish & chip“

Það er eng­um blöðum um það að flétta að „fish & chips“ er sérstaða The Ma­yf­a­ir Chippy, sem þarf ekki að koma á óvart, þar sem mein­ing­in á bak við orðið Chippy vís­ar til söluaðila sem sel­ur „fish & chips“ en staður­inn býður einnig upp á aðra hefðbundna klass­íska breska rétti, sem sum­ir hverj­ir breyt­ast eft­ir árstíðum. Þeir sem eru mikl­ir aðdá­end­ur „fish & chips“ ættu að lesa sig til um staðinn og hafa hann sem viðkomu­stað næst þegar arkað er til Lund­úna. Veit­ingastaður­inn er lít­ill og nota­leg­ur, staðsett­ur í norður hluta Ma­yf­a­ir hverf­is­ins í London. Best þykir að bóka borð fyr­ir fram til að tryggja sér borð.

Djúpsteikti fiskurinn er brakandi stökkur að utan.
Djúp­steikti fisk­ur­inn er brak­andi stökk­ur að utan. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert