Sælkerastaðurinn þar sem Meg Ryan gerði sér upp fullnægingu

Katz's Delicatessen í New York borg er veitingastaðurinn þar sem …
Katz's Delicatessen í New York borg er veitingastaðurinn þar sem hin geðþekka leikkona Meg Ryan gerir sér upp fullnægingu á eftirminnilegan hátt. Samsett mynd

Veit­ingastaður­inn Katz's Delica­tessen í New York borg er frægi staður­inn í hinni goðsagna­kenndu róm­an­tísku gam­an­mynd „When Harry met Sally“ þar sem hin geðþekka leik­kona Meg Ryan ger­ir sér upp full­næg­ingu á svo eft­ir­minni­lega hátt. Þar sit­ur hún and­spæn­is stór­leik­ar­an­um Billy Crystal í þessu stór­fræga atriði sem vakti gríðarlega mikla at­hygli á sín­um tíma og gerði mynd­ina stór­fræga. Eft­ir að Meg Ryan hafði lokið sér af með sín­um mögnuðu leiktil­b­urðum þá seg­ir einn viðskipta­vin­ur­inn í mynd­inni, „I'll have what she's having“ eða í laus­legri þýðingu, „ég ætla að fá það sem hún pantaði sér.“ Þarna fæst eitt besta pastrami í heimi.

Frægasta senan í kvikmyndinni þar sem tekin er upp á …
Fræg­asta sen­an í kvik­mynd­inni þar sem tek­in er upp á veit­ingastaðnum Katz's Delica­tessen í New York. Skjá­skot/​In­sta­gram

Elsti mat­sölustaður­inn í New York og einn sá fræg­asti                             

Katz´s deli á sér langa sögu og var orðinn löngu þekkt­ur fyr­ir kvik­mynd­ina „When Harry met Sally.“ Fyr­ir flesta New York-búa þýðir deli pastrami og pastrami þýðir Katz. Hin fræga sæl­kera­versl­un og veit­ingastaður Katz’s Delica­tessen opnaði dyrn­ar sín­ar árið 1888 og er þekkt­ur sem elsti mat­sölustaður­inn í New York borg og að öll­um lík­ind­um einn fræg­asti mat­sölustaður­inn í Banda­ríkj­un­um.

Katz's Delicatessen í New York borg er frægi staðurinn í …
Katz's Delica­tessen í New York borg er frægi staður­inn í hinni goðsagna­kenndu róm­an­tísku gam­an­mynd „When Harry met Sally“. Skjá­skot/​In­sta­gram

Veit­ingastaður­inn hef­ur verið sótt­ur af fjölda frægðarmanna og stjórn­mála­manna í gegn­um tíðina og auðvitað af heima­mönn­um. Í dag er Katz's Delica­tessen ákjós­an­leg­ur staður fyr­ir ferðamenn sem heim­sækja New York borg og mik­il upp­lif­un enda staður­inn með ein­dæm­um vin­sæll, mat­ur­inn góður og staður­inn þétt set­inn alla daga og auðvelt fyr­ir gesti staðar­ins að upp­lifa ákveðna stór­borg­ar­menn­ingu. Staður­inn er þekkt­ur fyr­ir sín­ar meist­ara­legu og girni­legu sam­lok­ur sem fáir aðrir veit­ingastaðir kom­ast með tærn­ar þar sem Katz´s deli hef­ur hæl­ana. Ein­kenn­is­sam­loka staðar­ins er rúg­brauð með þykku lagi af Katz's pastrami sem er toppað með sterkri papriku, Dijon sinn­epi og skvettu af gooey hvít­lauks con­fit og síðan þakið göml­um provolone osti.

Samlokurnar eru unaðslega girnilegar og fyrir þá sem elska steikarsamlokur …
Sam­lok­urn­ar eru unaðslega girni­leg­ar og fyr­ir þá sem elska steik­ar­sam­lok­ur eru þess­ar al­vöru. Skjá­skot/​In­sta­gram

Hvað er Pastrami?

Pastrami er mjög kryddað reykt nauta­kjöt sem er sér­stak­lega unnið úr bringu nauts­ins og eru sam­lok­unn­ar á Katz hverr­ar krónu virði fyr­ir þá sem eru sam­loku­unn­end­ur.

Ómótstæðilegt pastrami og steikningin fullkomin.
Ómót­stæðilegt pastrami og steikn­ing­in full­kom­in. Skjá­skot/​In­sta­gram

Hér má sjá hina frægu senu í kvik­mynd­inni When Harry meet Sally:

Þær eru ófáar samlokurnar sem rjúka á þessum vinsæla og …
Þær eru ófá­ar sam­lok­urn­ar sem rjúka á þess­um vin­sæla og sögu­fræga stað. Skjá­skot/​In­sta­gram
Samlokurnar eru líka hægt að fá með ýmis konar djúsi …
Sam­lok­urn­ar eru líka hægt að fá með ýmis kon­ar djúsi dress­ing­um sem bráðna í munni. Skjá­skot/​In­sta­gram
Það hefur verið hreinn unaður hjá Meg Ryan að njóta …
Það hef­ur verið hreinn unaður hjá Meg Ryan að njóta sam­lok­unn­ar með Billy Crystal í þess­ari senu. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert