Langbesta beyglubúllan í New York

Ess-a-Bagel er ein af, ef ekki þekktustu beyglubúllum í New …
Ess-a-Bagel er ein af, ef ekki þekktustu beyglubúllum í New York borg og ekki af ástæðulausu. Samsett mynd

Ess-a-Bag­el er ein af, ef ekki þekkt­ustu beyglu­búll­um í New York borg og ekki af ástæðulausu. Beygl­urn­ar eru alltaf stór­ar, fersk­ar, dún­mjúk­ar og ljúf­feng­ar. Beygl­urn­ar eru ótrú­lega bragðgóðar, stökk­ar að utan, mjúk­ar að inn­an og ekki síður fyr­ir augað og eru sann­ar­lega þess virði að prófa og ekki síður fyr­ir beyglu unn­end­ur. Leynd­ar­málið um gæði beygl­anna felst í hand­bragðinu og ára­tuga reynslu og þekk­ingu bak­ar­ana. „Ess-a-Bag­el“ þýðir „Borðaðu beyglu“ á jiddísku og þýsku.

Marg­verðlaunaðar beygl­ur

Ess-a-Bag­el beyglu-búll­an er alla jafna troðfull lung­ann af deg­in­um, sér­stak­lega á morgn­ana og ekki síður á föstu­dög­um og um helg­ar. Viðskipta­vin­ir eru blanda af ferðamönn­um sem hafa heyrt eða lesið sig til um staðinn og að þetta séu bestu beygl­urn­ar í borg­inni. Heima­menn mæta jafn­fæt­is til að kepp­ast um hylli af­greiðslu­fólks­ins því að beygl­urn­ar eru svo góðar. Beygl­urn­ar eru marg­verlaunaðar fyr­ir gæði og bragð og hafa vakið þjóðar­hylli.

Úrvalið af beyglum er fjölbreytt og hægt er að fá …
Úrvalið af beygl­um er fjöl­breytt og hægt er að fá allt milli him­ins og jarðar á beygl­urn­ar. Skjá­skot/​In­sta­gram
Áferð og bragð eru margskonar og allir ættu að finna …
Áferð og bragð eru margskon­ar og all­ir ættu að finna eitt­hvað við sitt hæfi. Skjá­skot/​In­sta­gram
Beyglurnar eru girnilegar og ilmurinn lokkandi.
Beygl­urn­ar eru girni­leg­ar og ilm­ur­inn lokk­andi. Skjá­skot/​In­sta­gram
Beyglur með rjómaosti og reyktum laxi njóta mikilla hylli.
Beygl­ur með rjóma­osti og reykt­um laxi njóta mik­illa hylli. Skjá­skot/​In­sta­gram
Beyglur með omelettu, grænmeti, dressingu og skinku eru líka mjög …
Beygl­ur með omelettu, græn­meti, dress­ingu og skinku eru líka mjög vin­sæl­ar, Skjá­skot/​In­sta­gram
Svo velur þú brauðtegundina þína líka.
Svo vel­ur þú brauðteg­und­ina þína líka. Skjá­skot/​In­sta­gram
Heimamenn mæta jafnfætis til að keppast um hylli afgreiðslufólksins því …
Heima­menn mæta jafn­fæt­is til að kepp­ast um hylli af­greiðslu­fólks­ins því að beygl­urn­ar eru svo góðar. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert