Geggjaðir pylsupinnar í partíið

Pylsupinnar eru alveg hreint lostæti.
Pylsupinnar eru alveg hreint lostæti. Ljósmynd/Aðsend

Pylsup­inn­ar er fyr­ir­bæri sem ekki all­ir hafa verið svo heppn­ir að fá að kynn­ast fyrr en nú, en betra er seint en aldrei. Þessi par­tírétt­ur svík­ur eng­an, enda er hann mik­il klass­ík sem hægt er að bjóða upp á hvar og hvenær sem er. Þrátt fyr­ir að pylsup­inn­arn­ir séu frá­bær­ir í par­tíið eða á veislu­borðið þá eru þeir ekk­ert síðri til að seðja hungrið í úti­leg­unni eða á fót­bolta­mót­un­um. Þeir eiga nefn­in­lega alltaf vel við.  

Geggjaðir pylsupinnar í partíið

Vista Prenta

Pylsup­inn­ar

Hrá­efni:

  • 1 kg hveiti
  • 50 g syk­ur
  • ½ tsk salt
  • ½ líter mjólk
  • 1 pakki þurr­ger 
  • 120 gr brætt smjör
  • 10 stk SS pyls­ur (einn pakki)
  • 1 stk egg
  • Smá mjólk

Aðferð:

  1. Velgið mjólk­ina og bætið þurr­ger­inu út í. Látið standa í að minnsta kosti 5 mín­út­ur. 
  2. Blandið öll­um þur­refn­um sam­an í skál og hrærið vel.
  3. Bræðið smjörið við væg­an hita og hellið því út á þur­refna­blönd­una.
  4. Bætið því næst mjólk­ur- og þurr­gers­blönd­unni sam­an við og hnoðið vel.
  5. Þegar deigið er orðið þétt í sér er gott að hnoða það í bolta og leggja ofan í skál, setja visku­stykki yfir skál­ina og leyfa deig­inu að hef­ast í um það bil klukku­stund.
  6. Á meðan beðið er eft­ir deig­inu eru pyls­urn­ar skorn­ar niður í bita.
  7. Þegar deigið er klárt er hveiti stráð yfir borðið og deig­inu skipt í 2-3 parta sem eru flatt­ir út með köku­kefli.
  8. Því næst er deigið skorið í fern­inga. Einn fern­ing­ur á að rúma einn pylsu­bita.
  9. Setjið pylsu­bita á miðjan deig­fern­ing og lokið hon­um með því að setja horn í horn. End­ur­takið þar til allt deigið hef­ur klár­ast.
  10. Raðið pylsupinn­un­um á ofnskúff­ur. Mik­il­vægt er að not­ast við bök­un­ar­papp­ír.
  11. Blandið sam­an eggi og smá mjólk í skál.
  12. Penslið hvern og einn pylsup­inna með blönd­unni.

Pylsup­inn­ana á að baka við 180° og blást­ur þar til þeir eru orðnir gull­in­brún­ir og lokk­andi lykt fer að leggj­ast yfir eld­húsið. 

Lykilatriðið er að baka pylsupinnana þar til þeir verða gullinbrúnir …
Lyk­il­atriðið er að baka pylsup­inn­ana þar til þeir verða gull­in­brún­ir og ilm­andi. Ljós­mynd/​Aðsend
Pylsupinnar eru hentugir í partíið en líka sem nasl og …
Pylsup­inn­ar eru hent­ug­ir í par­tíið en líka sem nasl og milli­mál. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert