Þetta salat verður þú að smakka

Þetta undursamlega kúrbítssalat verður þú að smakka.
Þetta undursamlega kúrbítssalat verður þú að smakka. Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Hér er á ferðinni létt og öðru­vísi sal­at þar sem kúr­bít­ur er í aðal­hlut­verk­inu, grillaður og und­ur­sam­lega góður. Þetta er ör­stutta stund að út­búa þetta sal­at en þegar búið er að grilla kúr­bít­inn er lauflétt  skella því sam­an. Sal­atið er frá­bært með grill­mat eða bara þegar maður er í stuði fyr­ir ann­ars kon­ar sal­at. Guðrún Ýr Eðvalds­dótt­ir upp­skrift­ar­höf­und­ur hjá Döðlur og smjör á heiður­inn að þessu dá­sam­lega sal­ati sem þú verður að smakka. 

Þetta salat verður þú að smakka

Vista Prenta

Kúr­bíts­sal­at

Fyr­ir 3 til 4

  • 1 kúr­bít­ur
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. pip­ar
  • 1 dós maís
  • 1 poki kletta­sal­at
  • 40 g furu­hnet­ur
  • ½ krukka sal­at ost­ur

Aðferð:

  1. Kveikið á grill­inu.
  2. Byrjið á því að skera kúr­bít­inn í sneiðar, leggið á bretti og berið olíu á sneiðarn­ar og kryddið með salt og pip­ar.
  3. Snúið sneiðunum við og gerið sama á hina hliðina.
  4. Setjið kúr­bít­inn á grill og grillið í 5 mín­út­ur, snúið þá kúr­bítn­um og grillið í 5 mín­út­ur á hinni hliðinni.
  5. Takið þá kúr­bít­inn af grill­inu og leggið á bretti og leyfið að kólna lít­il­lega.
  6. Opnið dós af maís og hellið vökv­an­um frá og ristið furu­hnet­urn­ar á pönnu og skolið kletta­sal­atið.
  7. Takið til fal­leg­an disk til að setja sal­atið á.
  8. Dreifið hand­fylli af kletta­sal­ati á disk­inn, leggið þá kúr­bít yfir og sáldrið baun­um og furu­hnet­um yfir.
  9. End­ur­takið þangað til að hrá­efn­in eru öll kom­in á disk, endið þá á því að dreifa vel af sal­at osti yfir og gott er að setja svo­lítið að ol­í­unni með yfir.
  10. Njótið vel. 
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert