Dásamlegt banana- og gulrótarbrauð sem þú verður að prófa

Þetta er dásamlegt banana- og gulrótarbrauð og ólíkt hefðbundnum bananabrauðum.
Þetta er dásamlegt banana- og gulrótarbrauð og ólíkt hefðbundnum bananabrauðum. Ljósmynd/Linda Ben

Þetta ban­ana­brauð er al­veg dá­sam­lega góm­sæt og full­komið til að baka nú þegar hefðbund­in rútína er far­in í gang. Skól­arn­ir eru að hefjast og hvers­dags­leik­inn að taka við á flest­um heim­il­um eft­ir sum­ar­frí og þá er ekk­ert betra en að bjóða upp á eitt­hvað nýbakað sem létt­ir lífið.

Linda Ben upp­skrift­ar­höf­und­ur sem held­ur úti upp­skrift­asíðunni Linda Ben á heiður­inn af þessu dá­sam­lega ban­ana­brauði og fram­setn­ing er líka svo skemmti­leg. „Þetta er ólíkt öðrum ban­ana­brauðum að því leyti að það inni­held­ur einnig gul­ræt­ur sem gera það enn þá mýkra og minn­ir svo­lítið á gul­róta­köku,“ seg­ir Linda. Brauðið inni­held­ur eng­in egg eða mjólk­ur­vör­ur og er veg­an, engu að síður gott fyr­ir alla. Hægt er að sjá Lindu töfra fram ban­ana- og gul­rót­ar­brauðið á In­sta­gram reikn­ing henn­ar hér fyr­ir neðan.

Dásamlegt banana- og gulrótarbrauð sem þú verður að prófa

Vista Prenta

Ban­ana- og gul­rót­ar­brauð

  • 200 g spelt – skipt 50% gróft og 50% fínt (líka hægt að nota hefðbundið hveiti)
  • 2 tsk. kanill
  • 1 tsk. lyfti­duft
  • 1 tsk. mat­ar­sódi
  • klípa af salti
  • 75 g syk­ur
  • 1 dl hafrajóg­úrt með vanillu frá Veru Örnu­dótt­ur
  • ½ dl fljót­andi kó­kosol­ía
  • 3 meðal stór­ir vel þroskaðir ban­an­ar (+1 auka til að setja ofan á brauðið en má sleppa)
  • 125 g rifn­ar gul­ræt­ur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 175°C, und­ir og yfir hita.
  2. Setjið spelt/​hveiti, kanil, lyfti­duft, mat­ar­sóda og salt  í skál, blandið sam­an.
  3. Setjið syk­ur, hafrajóg­úrt, kó­kosol­íu í skál og blandið sam­an.
  4. Stappið ban­an­ana og blandið þeim sam­an við jóg­úr­t­blönd­una.
  5. Hellið ban­ana+jóg­úr­t­blönd­unni út í þur­refna­blönd­una og blandið sam­an.
  6. Rífið gul­ræt­urn­ar og setjið ofan í skál­ina, blandið sam­an við.
  7. Hellið deig­inu í smjörpapp­írsklætt form sem er 11×25 cm eða sam­bæri­lega stórt.
  8. Ef þið viljið þá getiði skorið einn ban­ana þvert og sett ofan á deigið.
  9. Bakið í u.þ.b. 50-55 mín­út­ur eða þar til brauðið er bakað í gegn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert