Spurningin sem brennur á vörum landsmanna á hverjum degi, stundum oft á dag er: „Hvað á að vera í kvöldmatinn?“ Það er ekkert einfalt svar við þessari spurningu því fólk hefur misjafnan matarsmekk og ólíkar þarfir þegar kemur að mat.
Í þreytu og streituástandi er auðvitað mjög freistandi að koma við á leiðinni heim úr vinnunni og kaupa eitthvað einfalt. Eitthvað tilbúið. Það er skiljanlegt og ekkert að því en sannleikurinn er samt sá að það tekur um það bil jafnlangan tíma að elda fisk og að sækja tilbúinn mat. Þar að segja ef fiskurinn er til ásamt öðru hráefni.
Á dögunum elduðum við sonur minn þennan mexíkóska fisk í sameiningu. Ég skar niður, hann hrærði í, kryddaði og smakkaði til. Hann vill gjarnan læra að elda mat áður en hann flytur að heiman sem er gott, en ég vona þó að hann hyggist ekki á brotflutning á næstu vikum. Hann er í unglingadeild grunnskóla – fæddur kreppuárið mikla 2009.
Í þessa uppskrift notuðum við það sem til var. Það má að sjálfsögðu nota öðruvísi fisk, annað grænmeti og jafnvel bara kjúkling. Það tók okkur hálftíma að elda fiskinn en áður en við byrjuðum að elda létum við hrísgrjón í pott og létum þau sjóða á meðan fiskurinn var gerður. Það er svo ferlega óþolandi að þurfa að bíða eftir hrísgrjónum – eiginlega jafnóþolandi og að bíða eftir strætó í vondu veðri.
Uppskrift fyrir 4.
Aðferð: