Sítrónubúðingurinn hinn fullkomni eftirréttur

Hér er hann kominn, hinn dásamlegi og klassíski sítrónubúðingur. Gjörið …
Hér er hann kominn, hinn dásamlegi og klassíski sítrónubúðingur. Gjörið svo vel og njótið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fastur liður á matarvefnum á laugardagsmorgnum eru Húsó-uppskriftirnar sem koma úr hinu leyndardómsfulla eldhúsi í Hússtjórnarskólanum við Sólvallagötu. Skólameistarinn Marta María Arnarsdóttir ljóstrar hér upp uppskriftinni að hinum fullkomna eftirrétti, að minnsta kosti var þessi sá allra vinsælasti hér á árum áður og eftir þessa uppljóstrun mun hann koma sterkur til leiks að nýju. Hér er á ferðinni sítrónubúðingur sem á eftir að töfra helgarmatargestina upp úr skónum.

Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans, ljóstrar hér upp uppskriftinni að …
Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans, ljóstrar hér upp uppskriftinni að hinum fullkomna sítrónubúðingi, eftirrétti helgarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er svona matarlímsbúðingur að bestu gerð. Það eru margir sem hræðast það að vinna með matarlím. En þegar rétt er farið að og öllum skrefum er fylgt samviskusamlega er lítið mál að gera dýrindis matarlímsbúðing. Í margri matargerð er auðvelt að breyta uppskriftum og gera „dass” af þessu og hinu eftir eigin hentisemi. Það gengur ekki svo auðveldlega upp þegar unnið er með matarlím enda getur maður þá endað með kekkjóttan búðing og það viljum við jú ekki. Það þarf að beita þolinmæði og bera virðingu fyrir ferlinu – þá mun allt ganga smurt. Að endingu muntu líklega segja: „Ó, þetta var nú ekkert mál”, segir Marta María og brosir sínu blíðasta.

 Fullkominn sem eftirréttur helgarinnar.

Hinn fullkomni sítrónubúðingur

  • 4 blöð matarlím (8 g)
  • 2 egg
  • 50 g sykur
  • ½ tsk. rifinn sítrónubörkur
  • ½ - ¾ dl sítrónusafi
  • 2 dl rjómi

Aðferð:

  1. Rífið börkinn af sítrónunni og kreistið sítrónusafann.
  2. Leggið matarlímsblöð í bleyti í ískalt vatn.
  3. Þeytið rjóma.
  4. Setjið í skál og geymið í kæli.
  5. Þvoið hrærivélaskálina og þeytarann vel og þurrkið.
  6. Þeytið egg og sykur svo það verði létt og ljóst í hreinni skálinni.
  7. Hellið vatninu af matarlíminu og bræðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni.
  8. Kælið í sítrónusafanum (37°C).
  9. Hellið í mjórri bunu út í eggjahræruna, hrærið í með sleikju, alltaf frá botninum fram og til baka, ekki í hringi.
  10. Blandið þeytta rjómanum og sítrónuberkinum saman við.
  11. Berið fram í fallegri skál og skreytið endilega með þeyttum rjóma og stráið örlítið af rifnum sítrónuberki yfir. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert