Við á matarvefnum bjóðum upp á vikumatseðilinn að þessu sinni með haustlegu ívafi. Uppskriftirnar fyrir vikuna eru girnilegar og matarmiklar sem passa vel fyrir alla fjölskylduna.
Mánudagur – Ljúffengir saltaðir þorskhnakkar í spínatsósu
„Saltfiskur er herramannsmatur og það er ávallt ljúft að byrja nýja matarviku á fiskrétt.“
Þriðjudagur – Spagettíréttur með nýstárlegu sniði
„Þetta er nýstárlegur spagettíréttur sem uppskriftahöfundurinn skírði milljón dollara spagettíréttinn. Þessi réttur nýtur mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni og einfalt að elda.“
Miðvikudagur – Grjónagrautur af betri gerðinni
„Miðvikudagskvöld er vel til þess fallin að fá sér kvöldverð sem tekur stuttan tíma að útbúa og ekki síðra að hafa hann þjóðlegan í takt við árstíðina. Þessi grjónagrautur er af betri gerðinni og bragðast ótrúlega vel.“
Fimmtudagar – Austurlensk grænmetissúpa
„Matarmiklar og bragðgóðar súpur eiga vel við á haustin. Þessi súpa er fullkomin til að njóta á fallegu haustkvöldi við kertaljós og kósíheit. Getum vel mælt með henni.“
Föstudagur – Hamborgari með ómótstæðilega góðri bearnaise majó
„Föstudagar eru oft pitsadagar hjá mörgum fjölskyldum og sumir elska að fá girnilegan hamborgara. Við mælum með hamborgaraveislu þetta föstudagskvöld.“
Laugardagur – Ljúffeng nautalund á franska vísu sem steinliggur
„Grilluð nautalund er góð alla ársins hring. Hér er lúxusútgáfan af nautalund með svörtum trufflum, briochesneið, pönnusteiktu foie gras og madeirarauðvínsgljáa.“
Sunnudagur – Lamba-prime með kartöflumús, chimichurri og portobellosveppum
„Íslenska lambið er ávallt skothelt og lamba-prime er einstaklega gott grillað. Það er um að gera að nýta haustblíðuna til að grilla og njóta. Svo má auðvitað velja nýja íslenska uppskeru til að hafa með.“