Nú þegar tekur að hausta er ágætt að hressa aðeins upp á ónæmiskerfið og endurnæra kroppinn. Sumir fara á hreint fæði, aðrir í safahreinsun svo fátt sé nefnt. Kristjana Dröfn Haraldsdóttir, ávallt kölluð Jana, er ein þeirra sem fær sér góðan djús til að hressa upp á ónæmiskerfið og ná sér í auka orku. Jana er heilsumarkþjálfi og jógakennari og rekur fyrirtækið Nærandi líf þar sem hún stendur meðal annars fyrir námskeiðum og fyrirlestrum um hvernig má læra að slaka á, endurstilla og endurnæra taugakerfið.
Jana hefur líka mikinn áhuga á mataræði og hvernig má gefa líkamanum góða og endurnærandi orku. „Ég hef undanfarin ár verið hrifin að fá mér djúsa eða þeyting með minni daglegri næringarþörf. Einn djús hefur reynst mér ákaflega vel en það er Lífsorku-djúsinn minn. Ég nýti mér hann alveg helling,“ segir Jana.
Aðspurð segist Jana fá sér djúsinn eftir syndir sínar í áti á kræsingum eins og brauði. „Mér finnst agalega gott að drekka djúsinn þegar ég hef verið að borða of mikið af brauði eða jafnvel aðeins of mikið af sykri. Já, við erum öll einhvern tímann þarna. Munið bara að við dæmum engan og hvað þá okkur sjálf. Mig langar að nefna að ég elska brauð. En til þess að viðhalda mínu orkuflæði er brauð kannski ekki það allra besta fyrir mig. Brauðátið mitt er kannski tilefni í annan pistil,“ segir Jana og hlær.
Jana segist fá sér þennan djús til að rétta sig af. „Gefa meltingu hvíld. Hann er líka góður ef ég hef verið undir mikilli streitu og álagi. Stundum þegar ónæmiskerfið mitt gefur eftir við að verja mig frá allskonar pestum og ég fæ kannski eitt stykki flensu eða kvef hef ég nýtt mér Lífsorku-djúsinn við að endurnæra mig og byggja mig upp.“
Lífsorku-djúsinn er stútfullur af næringu. Hann er afeitrandi og styður við meltingarkerfið. „Drykkurinn samanstendur af grænmeti og epli. Á haustin höfum við aðgang að meira úrvali af íslensku og fersku grænmeti Til að mynda keypti ég um daginn íslenskt sellerí sem er guðdómlegt. Líka hef ég keypt íslenskar gulrætur og auðvitað gúrkan sem er alltaf til á öllum árstíðum hér á Íslandi. Mikilvægt er þegar þú ætlar að gera þennan drykk er kaupa lífrænt og hreint hráefni.“
Næsta skref er að prófa djúsinn og finna áhrifin.
Lífsorku-djúsinn
Aðferð: