Bleikur draumur Evu Maríu

Bleiki draumurinn hennar Eva Maríu Hallgrímsdóttur er hinn fullkomni eftirréttur …
Bleiki draumurinn hennar Eva Maríu Hallgrímsdóttur er hinn fullkomni eftirréttur til að bera fram á bleika deginum. Ljósmynd/Eva María

Í til­efni þess að bleiki dag­ur­inn er í dag höld­um við áfram að birta upp­skrift­ir af bleik­um kræs­ing­um sem vert er að bjóða upp í til­efni dags­ins og í raun alla helg­ina með helgarkaff­inu. Þetta er hvatn­ing til les­enda til að standa fyr­ir bleiku kaffi­hlaðborði eða bleik­um kræs­ing­um í dag og um helg­ina svo að all­ar kon­ur sem greinst hafa með krabba­mein finni fyr­ir stuðningi lands­manna og sam­stöðu. 

Eva María Hall­gríms­dótt­ir sæl­keri og eig­andi Sætra Synda tek­ur þátt í bleika deg­in­um að miklu krafti, bæði í vinn­unni og heima í faðmi fjöl­skyld­unn­ar. Eva María er þekkt fyr­ir sín­ar fal­legu og ljúf­fengu bleiku kök­ur hjá Sæt­um Synd­um auk þess sem hún er fræg fyr­ir bleika kampa­vínskaffi­húsið og bleik­ar veisl­ur.

Bjóða upp á fal­leg­ar bleik­ar kræs­ing­ar í all­an dag

„Varðandi bleika dag­inn þá að sjálf­sögðu tek ég og Sæt­ar Synd­ir þátt í hon­um en það er brjálað að gera hjá okk­ur í köku­gerðinni að und­ir­búa kræs­ing­ar fyr­ir hann en Sæt­ar Synd­ir bjóða upp á bleik­ar kræs­ing­ar eins og fal­lega bleika veislu­bakka fyr­ir dag­inn sem og skemmti­leg­ar brjósta­kök­ur fyr­ir dag­inn. Gam­an að vera mis­mun­andi vör­ur og áhersl­ur en 20% af öll­um veit­ing­um tengd­um Bleiku slauf­unni renn­ur til átaks­ins,“ seg­ir Eva María. Í dag verður nóg til af bleik­um kræs­ing­um hjá Sæt­um Synd­um sem hægt er að kaupa og taka með í vinn­una eða heim að njóta.

Eva María ætl­ar líka að gera bleik­an eft­ir­rétt í til­efni dags­ins fyr­ir fjöl­skyld­una sem ber heitið Bleik­ur draum­ur en það er eft­ir­réttamús með LU kex botni sem bráðnar í munni. „Bleiki draum­ur slær ávallt í gegn og er hinn full­komni eft­ir­rétt­ur á þess­um degi,“ seg­ir Eva María að lok­um.

Bleik­ur draum­ur Evu Maríu

Vista Prenta

Bleik­ur draum­ur

Bleik eft­ir­réttamús með LU kex­botni

  • 350 g fros­in hind­ber
  • 2/​3 bolli syk­ur
  • 1 pk gelat­ín blöð og ¼ bolli vatn til að mýkja blöðin
  • 1 ½ bolli kald­ur rjómi
  • LU kex 

Aðferð:

  1. Byrjið á að leggja gelat­ín blöðin í vatn til að mýkja blöðin og þar til þau eru búin að sjúga upp allt vatnið. 
  2. Á meðan beðið er eft­ir að gelat­ínið mýk­ist setjið fros­in hind­ber, syk­ur og smá vatn í pott og hitið þar til ber­in leys­ast upp og bland­an verður að sósu.
  3. Get­ur tekið 5-6 mín­út­ur.
  4. Þegar berja­bland­an er klár er best að setja hana í bland­ara í eina mín­útu eða þar til bland­an er orðin al­veg slétt.
  5. Næst smellið þið blönd­unni aft­ur í pott­inn og bætið við gelat­ín blöðunum og hitið á væg­um hita þar til blöðin eru upp­leyst.
  6. Passið að hafa ekki of mik­inn hita því bland­an get­ur brunnið.
  7. Þegar berja­bland­an er klár setjið hana til hliðið og leyfið að kólna.
  8. Þeytið næst rjómann.
  9.  Þegar rjóm­inn er orðinn stífþeytt­ur og berja­bland­an er orðin köld, blandið þá rjóm­an­um og berja­blönd­un­um var­lega sam­an í hönd­un­um þar til bland­an verður slétt og sam­felld.
  10. Setjið LU kex í mat­vinnslu­vél og maukið. 
  11. Finnið fal­leg kampa­víns­glös eða glös á fæti, setjið kexmuln­ing­inn í botn­inn og svo mús­ina ofan á það og skreytið.
  12. Ég notaði þurrkuð æt blóm en hægt að leika sér með fersk blóm eða ávexti.
  13. Setjið glös­in inn í kæli þar til það á að bera þau fram.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert