Húsó-grjónagrauturinn, krækiberjasaft og lifrarpylsa

Hinn klassíski Húsó-grjónagrauturinn og krækiberjasaft er hinn fullkomni vetrarréttur og …
Hinn klassíski Húsó-grjónagrauturinn og krækiberjasaft er hinn fullkomni vetrarréttur og gott að borða lifrarpylsu með. mbl.is/Árni Sæberg

Fast­ur liður á mat­ar­vefn­um á laug­ar­dags­morgn­um eru Húsó-upp­skrift­irn­ar sem koma úr hinu leynd­ar­dóms­fulla eld­húsi í Hús­stjórn­ar­skól­an­um við Sól­valla­götu. Nú er það Húsó-grjóna­graut­ur­inn með kræki­berja­saft og lifr­ar­pylsu sem all­ir eru sólgn­ir í. Skóla­meist­ar­inn Marta María Arn­ars­dótt­ir seg­ir að þessi grjóna­graut­ur slái ávallt í gegn og hann hafi fylgt skól­an­um í ár­anna rás. Meira segja taka nem­end­ur slátrið sjálf­ir eins og fram hef­ur komið á mat­ar­vefn­um. Þetta er ekta vetr­ar­rétt­ur sem minn­ir á gamla tím­ann og gott er að njóta meðan vet­ur kon­ung­ur blæs fyr­ir utan glugg­ann.

Hér er upp­skrift­in að grjóna­grautn­um kom­in ásamt kræki­berja­saft­inu og svo fylg­ir líka upp­skrift að slátr­inu góða.

Húsó-grjónagrauturinn, krækiberjasaft og lifrarpylsa

Vista Prenta

Húsó-grjóna­graut­ur og kræki­berja­saft

Hrís­grjóna­graut­ur

  • 2 ½ dl vatn
  • 1 dl hrís­grjón
  • 6 dl mjólk
  • ½ tsk. salt

Aðferð:

  1. Sjóðið grjón­in í vatn­inu í 10 mín­út­ur eða þar til vatnið er „horfið”.
  2. Sjóðið áfram með mjólk­inni í 20-30 mín­út­ur, eft­ir smekk – hve þykk­an graut þið viljið hafa. Saltið graut­inn í lok­in. Berið fram til dæm­is með rús­ín­um, kanil­sykri, mjólk og kræki­berja­saft.

Kræki­berja­saft

  • 1 l kræki­berja­saft
  • 750 g syk­ur
  • 1 tsk. sítr­ónusafi

Aðferð:

  1. Hakkið kræki­ber í hakka­vél og pressið saf­ann í gegn­um sigti og úr verður kræki­berja­saft.
  2. Hitið saft og syk­ur að suðu.
  3. Blandið sítr­ónusafa út í og setjið í hrein­ar, heit­ar flösk­ur og lokið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert