Le Creuset potturinn ómissandi í eldhúsinu hennar Hildar

Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og fagurkeri með meiru elskar að hafa …
Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og fagurkeri með meiru elskar að hafa fallegt í kringum sig og þá er eldhúsið uppáhaldsstaðurinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hild­ur Gunn­laugs­dótt­ir fag­ur­keri er ein­stak­lega sniðug og hug­mynda­rík þegar kem­ur að því að stílsera heim­ilið og fleiri staði. Hún elsk­ar að hafa fal­legt kring­um sig, sér­stak­lega þegar kem­ur að eld­hús­inu og borðhaldi. Hild­ur er með ein­dæm­um hæfi­leika­rík og fer létt með að halda á mörg­um bolt­um á lofti í einu.

Hún er arki­tekt og um­hverf­is­fræðing­ur, meðeig­andi arki­tekta­stof­unn­ar Stúd­íó Jæja. Síðan deil­ir hún ýmsu áhuga­verðu efni á In­sta­gram síðu sinni hér sem teng­ist hönn­un, heim­ili og arki­tekt­úr. Svo til að toppa verk­efna­list­ann þá er hún líka að gera upp lítið hót­el í miðborg­inni. 

Þegar heim­ilið er í for­grunni elsk­ar Hild­ur að fegra kring­um sig og leyfa per­sónu­leika sín­um að skína. Eld­húsið er henn­ar upp­á­haldsstaður og þar seg­ist hún gjarn­an eiga bestu sam­veru­stund­irn­ar með sínu fólki. Hlut­irn­ir í eld­hús­inu skipta hana máli og vand­ar Hild­ur valið þegar prýða á eld­húsið og allt sem því fylg­ir.

Hildur leggur mikið upp úr því að leggja fallega á …
Hild­ur legg­ur mikið upp úr því að leggja fal­lega á borð og finnst það skipta meira máli held­ur en mat­seld­in sjálf. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Mik­il­vægt að per­sónu­leik­inn fá að skína í borðhald­inu

„Manni líður ein­fald­lega bet­ur þegar það er fal­legt í kring­um mann, ég held líka bara að mat­ur­inn verði bragðbetri fyr­ir vikið. Um leið finnst mér mik­il­vægt að per­sónu­leik­inn manns fái að njóta sín í borðhald­inu og þess vegna finnst mér svo ótrú­lega gam­an að eiga postu­líns­stell frá ömmu, skál­ar sem ég hef keypt hér og það og fleira í þeim dúr. Það er auðvitað lang best ef hlut­irn­ir hafi gott nota­gildi en ég er ekki mikið fyr­ir óþarfa prjál eða skraut­muni sem hafa ekk­ert nota­gildi né til­gang,“ seg­ir Hild­ur. 

Hild­ur deil­ir hér með les­end­um mat­ar­vefs­ins hvað henni finnst gera eld­hús að eld­húsi og hvað er ómiss­andi að eiga í eld­hús­inu.

Hvað finnst þér ómiss­andi að eiga í eld­hús­inu?

„Ég fékk ný­verið fyrsta al­vöru pott­inn minn, Le Cr­eu­set pott úr Byggt og Búið, í dá­sam­leg­um lit sem pass­ar svo vel við eld­húsið mitt. Get ekki hugsað mér lífið án hans núna, þetta er auðvitað lífstíðar­eign.“ 

Nýi Le Creuset potturinn hennar Hildar ómissandi í eldhúsið að …
Nýi Le Cr­eu­set pott­ur­inn henn­ar Hild­ar ómiss­andi í eld­húsið að henn­ar mati og hana lang­ar að eign­ast fleiri Le Cr­eust potta og pönn­ur. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Áttu þér upp­á­halds­gla­salínu?

„Ég er byrjuð að kaupa mér Ferm li­ving glös­in í Hrím, mér finnst þau svo fal­leg, sér­stak­lega fyr­ir skemmti­lega lit­ríka drykki með smá app­el­sínu­berki eða öðru. Reynd­ar gaf vin­kona mín mér frá­bæra hug­mynd en hún kaup­ir krist­als­glös á an­t­ík­mörkuðum og bland­ar sam­an.“

Ferm living glösin í Hrím er ein uppáhaldsglasalínan hennar Hildar …
Ferm li­ving glös­in í Hrím er ein upp­á­halds­gla­salín­an henn­ar Hild­ar en henni finnst þau svo fal­leg, sér­stak­lega fyr­ir skemmti­lega lit­ríka drykki eins og sjá má hér. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Hvað finnst þér vera heit­asta vetr­artrendið í eld­húsið núna?

„Við erum öll að læra bet­ur að end­ur­vinna rusl og það er sí­fellt að taka meira pláss í eld­hús­inu, ég myndi því segja að smekk­leg­ar end­ur­vinnslu­lausn­ir séu það heit­asta í dag. Mig lang­ar mikið í sniðugu vegg­hengdu box­in frá ReCol­lector sem Kokka sel­ur. Ég elska þegar hönn­un breyt­ir svo­lítið subbu­legu vanda­máli í eitt­hvað smekk­legt.“ 

Brennd­ur app­el­sínu­gul­ur lit­ur sá heit­asti

Hvaða lit­ur finnst þér vera heit­ast­ur í vet­ur?

„Brennd­ur app­el­sínu­gul­ur lit­ur, fal­leg­ur „beige“ og hvít­ur í bland er eitt­hvað sem ég hef mjög gam­an af núna, með smá græn­um með.“ 

Danska blómið upp­á­halds­mat­ar­stellið

Upp­á­halds­mat­ar­stellið þitt?

„Það er postu­líns­stellið frá ömmu Dóru. Það er danska Bláa blómið. Mér finnst það svo fal­legt en síst af því ég man eft­ir því hjá ömmu og hugsa til henn­ar í hvert sinn sem ég nota það. Ég á ann­ars mjög venju­legt og klass­ískt hvítt stell en lang­ar líka í bleika Reli­ef stellið sem fæst hjá Ilva en ég er að reyna að gera upp um mig hvort það sé of mikið að eiga 3 stell.“

Matarstellið frá ömmu Hildar er uppáhaldsstellið hennar og er danskt …
Mat­ar­stellið frá ömmu Hild­ar er upp­á­halds­stellið henn­ar og er danskt og ber heitið Blómið. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Upp­á­halds­hnífa­settið?

„Mér verður lík­lega út­skúfuð fyr­ir þetta en ég á enga fína hnífa, bara Ikea og ein­hverja drasl hnífa sem ég keypti í stór­markaði á Spáni.“

Plast- eða viðarbretti?

„Plast þegar eng­inn sér til, ann­ars viðarbretti.“

Ertu með kaffi­vél í eld­hús­inu?

„Nei, ég er al­veg aga­leg en mamma gaf mér Nespresso vél fyr­ir nokkr­um árum sem er á hót­el­inu núna en ég á pressu­könnu sem er stund­um tek­in fram þegar gest­ir þiggja kaffi. Við Hreiðar drekk­um ann­ars nán­ast aldrei kaffi. Mig lang­ar þó í Moccamaster kaffi­vél en aðallega vegna þess að það er hægt að fá hana í svo fal­leg­um lit­um.“

Áttu þér þinn upp­á­haldskaffi­bolla?

„Ég á nokkra bolla frá Ker sem ég dýrka, ég nota þá bara og þarf nauðsyn­lega að fara að fá mér fleiri. Þeir eru svo ein­fald­ir og fal­leg­ir.“

Breyt­ir þú eld­hús­inu eft­ir árstíðum, hvað varðar liti og annað slíkt?

„Eld­hús­eyj­an breyt­ist mikið eft­ir árstíðum, á sumr­in er ég með vasa fulla af blóm­leg­um arfa sem ég tíni á leið minni um hverfið og ávext­ir í skál. Í kring­um jól­in eru krukk­ur með smá­kök­um og jóla­skreyt­ing á eyj­unni, núna í haust eru haust­leg blóm í vasa frá Blómstru og kerti með góðum ilm.“

Upp­á­haldsstaður­inn þinn í eld­hús­inu?

„Á bak við eyj­una þegar ég er að hella búbbl­ur í glas góðar vin­konu, eða bara spjalla við stelp­urn­ar mín­ar þegar þær sitja þar og drekka kakó.“

Uppáhaldsstaður Hildar í eldhúsinu er bak við eyjuna þegar hún …
Upp­á­haldsstaður Hild­ar í eld­hús­inu er bak við eyj­una þegar hún býður góðum vin­kon­um upp á búbbl­ur í fal­leg­um glös­um. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Drauma­elda­vél­in frá Ilve sem Kokka sel­ur

Áttu þér drauma­elda­vél? Hvort ertu hrifn­ari að gas eða spam þegar elda­vél er ann­ars veg­ar?

„Ég er búin að segja mann­in­um mín­um að í næsta húsi verði gaselda­vél frá Ilve sem Kokka sel­ur, ég fer oft bara til að skoða þótt ég viti að ég fái mér lík­lega ekki nýja elda­vél í bráð. Þær eru ótrú­lega fal­leg­ar í ýms­um lit­um og setja svo mik­inn svip á eld­húsið. Ég er með spam núna og finnst það fínt en var alltaf með gas þegar ég ólst upp og þegar ég var í námi í Dan­mörku þannig að mér finnst bæði betra.“

Ertu með kerti í eld­hús­inu?

„Já, elska góð ilm­kerti í eld­húsið, sér­stak­lega á vet­urna. Ég er með al­gjört æði fyr­ir kert­un­um frá Ihanna Home. Ég fer þó spar­lega með kerti þar sem dæt­ur mín­ar eru með ast­ma og nota líka mikið batte­rískerti sem eru sem bet­ur fer orðin al­veg ótrú­lega vönduð og hafa sömu áhrif.“

Ilmkerti í eldhúsið er eitt af því sem Hildur er …
Ilm­kerti í eld­húsið er eitt af því sem Hild­ur er ávallt með. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Finnst þér skipta máli að leggja fal­lega á borð?

„Ef ég er al­veg heiðarleg þá finnst mér það skipta mun meira máli en mat­ur­inn. Ég væri frek­ar til í að eyða lengri tíma í að leggja á borð og panta síðan bara „take away“ frek­ar en að eyða tíma í mat­seld­ina.“

Hvað dreym­ir þig um að eign­ast í eld­húsið?

„Mig dreym­ir um að eign­ast stóra skál fyr­ir ávexti frá Ker, marm­ara­sk­urðarbretti frá Ilva, fleiri Ripple glös frá Hrím, skipta út öll­um visku­stykkj­um fyr­ir visku­stykki frá Ihanna home, eign­ast Moccamaster kaffi­vél fyr­ir kaffiþyrsta gesti, eign­ast fleiri Le Cr­eu­set potta og pönn­ur í fal­leg­um lit­um, eign­ast góða hnífa, kampa­víns­fötu úr marm­ara, jafn­vel skipta út skápa­h­urðunum í eld­hús­inu mínu. Best að hætta núna en list­inn er miklu lengri.“

Hildur nýtur sín við að stilla upp litríku kræsingum sem …
Hild­ur nýt­ur sín við að stilla upp lit­ríku kræs­ing­um sem gleðja aug­un. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Bleiki liturinn er oft ríkjandi hjá Hildi eins og sjá …
Bleiki lit­ur­inn er oft ríkj­andi hjá Hildi eins og sjá má á mynd­un­um þó hún segi að brennd­ur app­el­sínu­gul­ur lit­ur sé sá heit­asti í vet­ur. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert