Forsetaskúffukakan sló í gegn í Húsó

Forseti Íslands Guðni Th, Jóhannesson sker fyrstu sneiðina á Forsetaskúffukökuni …
Forseti Íslands Guðni Th, Jóhannesson sker fyrstu sneiðina á Forsetaskúffukökuni sem var tileinkuð honum í Hússtjórnarskólanum. Samsett mynd

Fast­ur liður á mat­ar­vefn­um á laug­ar­dags­morgn­um eru Húsó-upp­skrift­irn­ar sem koma úr hinu fræga eld­húsi í Hús­stjórn­ar­skól­an­um við Sól­valla­götu. Að þessu sinni flett­ir skóla­meist­ar­inn Marta María Arn­ars­dótt­ir hul­unni af for­seta­skúffu­kök­unni sem þykir sú besta.

„Það er mjög gam­an að segja frá því að við bjugg­um þessa skúffu­köku­upp­skrift sér­stak­lega til fyr­ir for­set­ann okk­ar, þegar hann mætti til okk­ar í 80 ára af­mæli okk­ar í fyrra,“ seg­ir Marta María. Þessi lengja var ein­fald­lega gerð þannig að marg­ar skúffu­kök­ur voru sett­ar sam­an og sama smjörkrem í áletr­un­inni, bara án kakós­ins. For­seti Íslands, Guðni Th. Jó­hann­es­son var al­sæll með skúffu­kök­una og bað ör­ugg­lega um upp­skrift­ina fyr­ir Bessastaði.

Mörgum finnst gott að skreytta skúffukökurnar með kókos.
Mörg­um finnst gott að skreytta skúffu­kök­urn­ar með kó­kos. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Forsetaskúffukakan sló í gegn í Húsó

Vista Prenta

For­seta­skúffukakan

  • 3 ½ bolli hveiti
  • 3 boll­ar syk­ur
  • 2 ½ tsk. lyfti­duft
  • 1 tsk. mat­ar­sódi
  • 2 tsk. salt
  • 80 g kakó
  • 2 boll­ar mjólk
  • 4 egg
  • 2 tsk. vanillu­drop­ar
  • 220 g brætt smjör

Aðferð:

  1. Þur­refni sigtuð í skál.
  2. Egg, mjólk og vanillu­drop­um blandað sam­an í aðra skál og hrært sam­an við þur­refn­in.
  3. Smjör brætt við væg­an hita og sett út í í lok­in.
  4. Hellt í stóra ofnskúffu með bök­un­ar­papp­ír og bakað við 180°C á blæstri í 30 mín­út­ur.

Smjörkrem

  • 250 g smjör
  • 500 g flór­syk­ur
  • 4 msk. kakó
  • 2 msk. rjómi
  • 2 tsk. vanillu­drop­ar
  • 1 msk .kaffi (ef vill)

Skraut:

  • Kó­kos

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efni sam­an í skál og þeytið með spaðanum.
  2. Smyrjið krem­inu síðan yfir skúffu­kök­una þegar hún hef­ur kólnað.
  3. Skreytið með kó­kos ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert