Eftirlíking af ostasalatinu hjá Brauð & Co

Ostasalatið hennar Berglindar með döðlunum er ekki síðra en það …
Ostasalatið hennar Berglindar með döðlunum er ekki síðra en það sem fæst hjá Brauð & Co að mati fjölskyldu Berglindar. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berg­lind Hreiðars mat­ar- og lífstíls­blogg­ari með meiru gerði sér lítið fyr­ir og út­bjó eft­ir­lík­ingu af osta­sal­at­inu sem frægt er orðið hjá Brauð & Co. „Maður­inn minn gat ekki hætt að dá­sama osta­sal­at frá Brauð & Co sem hann fékk í vinn­unni hjá sér um dag­inn svo ég ákvað að skoða það sal­at aðeins nán­ar. Eft­ir að hafa smakkað sal­atið og skoðað inni­halds­lýs­ing­una vel ákvað ég að láta á þetta reyna og herma eft­ir þessu góða sal­ati. Útkom­an heppnaðist of­ur­vel og hér hafið þið dá­sam­lega út­gáfu af góðu osta­sal­ati,“ seg­ir Berg­lind og bros­ir. 

Osta­salöt eru góð með brauði, kexi og frækexi. Hægt er að bjóða upp á osta­salöt við hin ýmsu til­efni. 

Eftirlíking af ostasalatinu hjá Brauð & Co

Vista Prenta

Osta­sal­at með döðlum

  • 80 g saxaðar döðlur
  • 1 stk. pip­arost­ur – kryddost­ur
  • 1 stk. Mexí­kóost­ur – kryddost­ur
  • 80 g Búri ost­ur
  • 230 g Hell­mann‘s maj­ónes eða maj­ónes að eig­in vali
  • 2 tsk. dijon sinn­ep með hun­angi
  • 2 tsk. sítr­ónusafi
  • 1 tsk. papriku­duft
  • 1 tsk. arom­at krydd ef vill, þarf ekki
  • ½ tsk. pip­ar
  • ½ tsk. cheyenne pip­ar

Aðferð:

  1. Skerið döðlurn­ar aðeins smærra niður og setjið í skál.
  2. Skerið alla ost­ana í litla ten­inga og bætið sam­an við döðlurn­ar.
  3. Hrærið því sem eft­ir er af hrá­efn­un­um sam­an í aðra skál og blandið síðan sam­an við ost­ana og döðlurn­ar.
  4. Berið fram með góðu brauði/​kexi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert