Ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu

Unaðslega ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu og kartöflumús á vel við …
Unaðslega ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu og kartöflumús á vel við á fallegu vetrarkvöldi. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Þessi nauta­pot­trétt­ur er unaðslega ljúf­feng­ur og á vel við á fal­legu vetr­ar­kvöldi. Pot­trétt­ur og kart­öflumús er full­kom­in blanda til að njóta í faðmi fjöl­skyld­unn­ar við huggu­leg­heit og kerta­ljós. Heiður­inn af þess­ari upp­skrift á Berg­lind Hreiðars lífs­stíls- og mat­ar­blogg­ar­inn sem all­ir þekkja hjá Gotte­rí og ger­sem­ar. Berg­lind kann sitt fag vel og er líka fag­ur­keri sem ber mat­inn fal­lega fram á borð.

Ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu

Vista Prenta

Nauta­pot­trétt­ur í rauðvínssósu

Fyr­ir 6

Pot­trétt­ur

  • 1,2 kg nautainn­læri (í sneiðum), eða annað svipað nauta­kjöt
  • 1 stór lauk­ur
  • 500 g gul­ræt­ur
  • 4 hvít­lauksrif
  • 60 g hveiti
  • 750 ml vatn
  • 50 ml Oscar fljót­andi nautakraft­ur
  • 500 ml Muga rauðvín eða rauðvín að eig­in val
  • 2 msk. tóm­at­púrra
  • 4 lár­viðarlauf
  • 3 tim­ian­grein­ar
  • Steik­ar­krydd
  • Salt + pip­ar
  • Ólífu­olía til steik­ing­ar

Aðferð:

  1. Skerið kjötið í bita (c.a 5 x 5 cm)
  2. Steikið það upp úr ólífu­olíu, brúnið vel og kryddið eft­ir smekk. Steikja þarf kjötið í 2-3 skömmt­um og geymið bit­ana síðan til hliðar á disk.
  3. Skerið lauk­inn niður í sneiðar og gul­ræt­urn­ar í bita, setjið í pott­inn sem þið steiktuð kjötið í án þess að þrífa hann á milli.
  4. Bætið aðeins ólífu­olíu sam­an við og leyfið að malla við meðal­hita þar til lauk­ur­inn mýk­ist, rífið hvít­lauk­inn einnig sam­an við í lok­in.
  5. Stráið hveit­inu næst yfir græn­metið og hrærið aðeins í öllu sam­an og hellið síðan vatni, nautakrafti, rauðvíni og tóm­at­púrru sam­an við og hrærið vel sam­an.
  6. Setjið kjötið nú aft­ur í pott­inn ásamt lár­viðarlauf­um og tim­i­an, náið suðunni upp að nýju og lækkið síðan al­veg niður, setjið lokið á pott­inn og leyfið að malla í 2 klukku­stund­ir.
  7. Sjóðið kart­öfl­ur fyr­ir kart­öflumús­ina svo þær séu til­bún­ar að þess­um 2 klukku­stund­um liðnum.
  8. Takið lokið af pott­in­um eft­ir 2 klukku­stund­ir og leyfið að malla áfram í um 15-20 mín­út­ur á meðan þið út­búið kart­öflumús­ina.
  9. Saltið mögu­lega aðeins meira eða bætið við nautakrafti, allt eft­ir smekk.

Kart­öflumús

  • 1,3 kg kart­öfl­ur
  • 50 g smjör
  • 2 msk. syk­ur
  • 1 tsk. salt
  • 200 ml nýmjólk

Aðferð:

  1. Sjóðið og flysjið kart­öfl­urn­ar (eða öf­ugt, það má líka).
  2. Setjið þær í hræri­vél­ar­skál­ina ásamt smjöri, sykri og salti og blandið sam­an á lægstu still­ingu.
  3. Bætið mjólk­inni sam­an við í nokkr­um skömmt­um og skafið niður á milli.
  4. Berið fram með pot­trétt­in­um og njótið vel.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert