Hvern langar ekki í alvöru „Big Mac“?

Berglind Hreiðars er búin að fullkomna leynisósuna á „Bic Mac“-hamborgarann …
Berglind Hreiðars er búin að fullkomna leynisósuna á „Bic Mac“-hamborgarann fræga. Nú er fössari og þá er lag að fá sé ómótstæðilegan borgara. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Það er kom­inn föstu­dag­ur og þá er upp­lagt að bjóða upp á ómót­stæðilega góðan ham­borg­ara. Þeir sem elska „Big Mac“-ham­borg­ar­ann fræga verða að prófa þessa upp­skrift og sam­setn­ingu sem kem­ur úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­sem­ar.

Berg­lind er búin að prófa „Big Mac tacos“ og gerði þar sósu sem var ótrú­lega lík „Big Mac“-sós­unni en er nú með aðra út­gáfu. „Að þessu sinni fór ég aðra leið með sós­una og þrátt fyr­ir að vera sam­sett úr allt öðru en hin þá var hún ótrú­lega lík sós­unni á Mc Don­alds,“ seg­ir Berg­lind og of­ur­ánægð með út­kom­una. Nú er ekk­ert annað í stöðunni að prófa og taka ham­borg­ar­ann alla leið.

Ómótstæðilegur að sjá.
Ómót­stæðileg­ur að sjá. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Hvern langar ekki í alvöru „Big Mac“?

Vista Prenta

Big Mac ham­borg­ari

4 stykki

Ham­borg­ar­ar

  • Um 700 g nauta­hakk
  • 4 ham­borg­ara­brauð + 4 botn­ar af ham­borg­ara­brauði
  • 8 ostsneiðar
  • Súr­ar gúrk­ur eft­ir smekk
  • Ice­berg saxað eft­ir smekk
  • 1 lauk­ur saxaður
  • Big Mac“ sósa
  • Smjör og olía til steik­ing­ar
  • Salt, pip­ar, ham­borg­ara­krydd

Aðferð:

  1. Byrjið á því að út­búa „Big Mac“-sós­una (sjá upp­skrift að neðan) og geymið í kæli á meðan annað er út­búið.
  2. Skiptið hakk­inu niður í 8 hluta (tæp­lega 90 g hver hluti) og mótið ham­borg­ara­buff, reynið að hafa þau frek­ar þunn.
  3. Smyrjið um 1 tsk. af mjúku smjöri á skorna hlut­ann á hverju ham­borg­ara­brauði.
  4. Setjið ólífu­olíu á pönnu og byrjið á því að hita brauðin. Setjið smjör­hliðina niður þar til þau fara að brún­ast og snúið síðan við stutta stund, leggið þau á disk þar til kem­ur að sam­setn­ingu.
  5. Steikið næst buff­in upp úr ólífu­olíu og kryddið eft­ir smekk.
  6. Raðið ham­borg­ar­an­um síðan sam­an; Brauð, sósa, kál, buff, ost­ur, lauk­ur, brauð, sósa, kál, súr­ar gúrk­ur, buff, ost­ur, smá meiri sósa og svo síðasta brauðið (lokið). 

Big Mac“-sósa

  • 200 g maj­ónes
  • 2 msk. Kraft þúsundeyjasósa
  • 2 msk. rel­ish úr flösku
  • 1 tsk. sykur

Aðferð:

  1. Pískið allt sam­an og geymið í kæli fram að notk­un.
Allir aðdáendur Mc Donalds verða að prófa þennan.
All­ir aðdá­end­ur Mc Don­alds verða að prófa þenn­an. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert