Hefðirnar lífseigar þegar kemur að hátíðarmatnum

Olga Mörk Valsdóttir ætlar að vera með léttreyktan lambahrygg á …
Olga Mörk Valsdóttir ætlar að vera með léttreyktan lambahrygg á jóladag og bera hann fram með ljúffengu meðlæti. Samsett mynd/Jóna Sigþórsdóttir

Þrátt fyr­ir nýj­ungagirni á ýms­um sviðum þá virðumst við halda fast í hefðirn­ar þegar kem­ur að jóla­hald­inu, eða hvað? Ein þeirra sem er með putt­ann á púls­in­um varðandi það er Olga Mörk Vals­dótt­ir, en hún er verk­smiðju­stjóri hjá SS á Hvols­velli og því í kjör­stöðu til að fylgj­ast með þróun á mat­ar­venj­um lands­manna yfir hátíðirnar.

„Þegar kem­ur að hátíðarmatn­um þá eru hefðirn­ar ansi líf­seig­ar og neysla fólks með svipuðu sniði ár eft­ir ár, sér­stak­lega á aðfanga­dag og jóla­dag. Það er helst að við séum að þróa nýj­ar vör­ur fyr­ir jóla­hlaðborð og slíkt, ný paté og steik­ur sem dæmi, en það er mun meiri þróun á öðrum árs­tím­um,“ seg­ir Olga. „Sem dæmi þá er birkireykta hangi­kjötið stærsta var­an hjá okk­ur og hjá mörg­um þá er hrein­lega lyk­il­atriði í jóla­stemn­ing­unni að hafa það á borðum, enda er það milt og fell­ur að smekk margra,“ bæt­ir hún við. 

Lambahrygg­ur á jóla­dag

Þrátt fyr­ir fastheldn­ina og hefðirn­ar þá er þó ein­hver þróun á neysl­unni um jól­in. „Fram­leiðslan á léttreykt­um lambahryggj­um hef­ur auk­ist um nokk­ur tonn á síðustu árum og ég hugsa að ein­hverj­ir velji þann kost um­fram grísa­hrygg­inn á aðfanga­dag,“ seg­ir Olga, sem sjálf er mjög hrif­in af léttreykt­um lambahrygg og ætl­ar að bera slík­an fram á jóla­dag. „Það er jóla­boð í minni fjöl­skyldu á ann­an í jól­um, þar sem birkireykta hangi­kjötið verður í aðal­hlut­verki, og því ætla ég að hafa lambahrygg­inn á jóla­dag,“ seg­ir Olga sem féllst fús­lega á að deila upp­skrift­inni að lambahryggn­um með les­end­um Morg­un­blaðsins hér að neðan.

Girnilegur léttreykti lambahryggurinn hennar Olgu.
Girni­leg­ur léttreykti lambahrygg­ur­inn henn­ar Olgu. Ljós­mynd/​Jóna Sigþórs­dótt­ir

Und­ir­bún­ing­ur hefst beint eft­ir slát­urtíðina

En hvenær byrja Olga og starfs­fé­lag­ar henn­ar að und­ir­búa jól­in? „Það er strax í slát­urtíðinni sem aðal und­ir­bún­ing­ur­inn hefst, þá þarf sem dæmi að frysta lamba­kjötið sem verður að hangi­kjöti svo það taki bet­ur við reyk­ing­unni. Og reynd­ar hefst und­ir­bún­ing­ur­inn enn fyrr því tví­reykta Tind­fjalla hangi­kjötið er gert á sumr­in, þar sem það þarf að þorna leng­ur. Það er sett í þurrk og svo þurrkað áður en það er reykt aft­ur,“ seg­ir Olga og bæt­ir við að tví­reykta hangi­kjötið sé orðið mjög vin­sælt í veisl­ur og ýmsa mann­fagnaði.

Og það er líf og fjör í jóla­törn­inni á Hvols­velli. „Það er alltaf mikið líf í tusk­un­um og gam­an að taka þátt í því að und­ir­búa jóla­hefðir lands­manna en auðvitað erum við líka ánægð í lok tarn­ar­inn­ar þegar stytt­ist í að hún sé búin. Í ár pökkuðum við síðustu vör­un­um kring­um 18. des­em­ber síðastliðinn og þá má segja að jól­in væru kom­in hjá okk­ur,“ seg­ir Olga brosandi

Hér er upp­skrift­in frá Olgu að léttreykta lambahryggn­um ómót­stæðilega sem hef­ur slegið í gegn á henn­ar heim­ili. Hrygg­inn ber hún fram með sósu, rauðkálssal­ati og dress­ingu, brúnuðum kart­öfl­um eða ofn­bökuðu rót­argræn­meti.

Með lambaryggnum býður Olga upp á rauðvínssósu og rauðkálssalat með …
Með lambaryggn­um býður Olga upp á rauðvínssósu og rauðkálssal­at með manda­rín­um. Ljós­mynd/​Jóna Sigþórs­dótt­ir

Hefðirnar lífseigar þegar kemur að hátíðarmatnum

Vista Prenta

Léttreykt­ur lambahrygg­ur með rauðvínssósu og rauðkálssal­ati með manda­rín­um 

  • 1 stk. léttreykt­ur lambahrygg­ur frá SS 
  • 70 g púður­syk­ur 
  • 2 msk. sætt sinn­ep
  • ½ app­el­sína, líf­rænt ræktuð og vel þveg­in, sneidd í þunn­ar sneiðar
  • 10 neg­ulnagl­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 130 °C.
  2. Setjið hrygg­inn í eld­fast mót með pur­una niður. Setjið c.a. 0,5 l af vatni í mótið og setjið álp­app­ír yfir.
  3. Bakið í um það bil 50 - 60 mín­út­ur, eða þangað til kjarn­hita­mæl­ir sýn­ir 60°C.
  4. Á meðan hrygg­ur­inn er í ofn­in­um, hrærið þá sam­an sinn­epi og púður­sykri og sneiðið app­el­sín­una í þunn­ar sneiðar.
  5. Búið til rauðkálssal­atið og annað meðlæti (sjá upp­skrift­ir fyr­ir neðan).
  6. Þegar hrygg­ur­inn er tek­inn út úr ofn­in­um er ofn­inn hitaður í 190°C, soðið sigtað frá og geymt fyr­ir sósu. 
  7. Snúið hryggn­um við og skerið tígla í pur­una.
  8. Þar næst er app­el­sínusneiðunum raðað jafnt yfir hrygg­inn og púður­syk­urs­bland­an smurð yfir og að lok­um er neg­ulnögl­un­um stungið á við og dreif í hrygg­inn.
  9. Setjið hrygg­inn í ofn­inn í um það bil 10 mín­út­ur, eða þangað til hann er orðinn fal­lega brúnn.
  10. Látið hrygg­inn hvíla í um það bil 10 – 15 mín­út­ur áður en hann er skor­inn. 

Rauðkálssal­at

  • ½ rauðkáls­haus
  • 2 manda­rín­ur
  • 50 g pekan­hnet­ur

Dress­ing

  • ½ dl bal­samico edik
  • 2 msk. kalt vatn
  • 2 msk. hun­ang
  • 2 msk. ólífu­olía
  • ½ tsk ferskt, rifið engi­fer
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Ristið hnet­urn­ar á heitri pönnu, setjið í skál og geymið þangað til rétt áður en sal­atið er borið fram.
  2. Saxið rauðkálið fínt með hníf eða rífið á grófu rif­járni.
  3. Afhýðið manda­rín­urn­ar og skerið í helm­inga. Tínið lauf­in í sund­ur og blandið sam­an við rauðkálið.
  4. Setjið allt efnið fyr­ir dress­ingu í krukku, lokið vel og hristið sam­an.
  5. Hellið yfir sal­atið, látið standa í um það bil klukku­tíma.
  6. Saxið hnet­urn­ar og stráið yfir sal­atið rétt áður en það er borið fram.

Sósa

  • Soðið af hryggn­um
  • 2 dl rauðvín
  • 1 dl rjómi
  • 2 tsk. rifs­berja­hlaup
  • Sósulit­ur eft­ir smekk
  • 40 g brætt smjör og 30 g hveiti, hrært sam­an

Aðferð:

  1. Sigtið soðið í pott, bætið 2 dl rauðvíni og rifs­berja­hlaup­inu sam­an við.
  2. Sjóðið niður um helm­ing, takið af hit­an­um.
  3. Setjið smjör­boll­una út í og þegar hún er upp­leyst er pott­ur­inn aft­ur sett­ur á hit­ann og soðið í um það bil 4 mín­út­ur.
  4. Bætið rjóma í og smakkið til með salt og pip­ar.
  5. Bætið í sósulit eft­ir smekk.
  6. Berið lambahrygg­inn fram ásamt sal­at­inu, dress­ingu og sósu og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert