Rjómaís og heitar íssósur að hætti Húsó

Rjómaís og heitar íssósur að hætti Húsó eiga vel við …
Rjómaís og heitar íssósur að hætti Húsó eiga vel við um hátíðirnar. Samsett mynd

Jól­in eru rétt hand­an við hornið og fjórði í aðventu og þá er lag að út­búa rjómaís með jólaívafi til að njóta upp hátíðirn­ar. Eins og hefð er fyr­ir á mat­ar­vefn­um á laug­ar­dags­morgn­um eru birt­ar Húsó-upp­skrift­ir sem koma úr hinu fræga eld­húsi í Hús­stjórn­ar­skól­an­um við Sól­valla­götu sem við eig­um vona að sjá mikið á skján­um á nýju ári þegar ný þáttaröð hef­ur göngu sína. Þetta sjón­varpsþáttaröðin Húsó sem hef­ur göngu sína á Ný­árs­dag.

Af­hjúp­ar upp­skrift­ina að rjómaísn­um

Í til­efni þessa af­hjúp­ar Marta María Arn­ars­dótt­ir skóla­meist­ari upp­skrift­ina að rjómaísn­um ásamt heitu íssós­un­um sem hafa verið í upp­á­haldi hjá nem­end­um, bæði fyrr­ver­andi og nú­ver­andi sem og öll­um þeim sem fá að smakka. Upp­skrift­irn­ar eru ein­fald­ar og þægi­leg­ar og all­ir eiga ráða við að búa til þenn­an dá­sam­lega rjómaís og geta sett hann í hátíðarbún­ing með því að bjóða upp fersk ber með.

Gaman er að bera ísinn fram á fallegan hátt. Skemmtilegast …
Gam­an er að bera ís­inn fram á fal­leg­an hátt. Skemmti­leg­ast er að frysta ís­inn í hring­laga formi með gati í miðjunni. Hægt er að fylla gatið með fersk­um berj­um ef vill. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Heitar súkkulaði- og karamelluíssósur að hætti Húsó.
Heit­ar súkkulaði- og kara­melluíssós­ur að hætti Húsó. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Rjómaís og heitar íssósur að hætti Húsó

Vista Prenta

Rjómaís

  • 4 eggj­ar­auður
  • 1 egg
  • 80-100 g syk­ur
  • ½ tsk. vanillu­syk­ur
  • ½ tsk. vanillu­drop­ar
  • 5 dl rjómi
  • 100 g saxað suðusúkkulaði, má sleppa

Aðferð:

  1. Þeytið eggj­ar­auður, egg og syk­ur í stífa froðu og blandið vanillu sam­an við.
  2. Þeytið rjómann og blandið var­lega sam­an við eggja­f­roðuna ásamt saxaða súkkulaðinu.
  3. Látið í hæfi­lega stórt mót, upp­lagt að velja hring­laga­form með mynstri og gati í miðjuna. Ísinn verður svo fal­leg­ur þegar hann er bor­inn fram þegar formið er með skemmti­lega lög­un.
  4. Setjið strax í frost.

Heit kara­mellusósa

  • 100 g smjör
  • 100 g púður­syk­ur
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 1 dl rjómi

Aðferð:

  1. Sjóðið sam­an í 5 mín­út­ur og hrært stöðugt á meðan.
  2. Sós­an er bor­in fram heit.

Heit súkkulaðisósa

  • 150 g suðusúkkulaði
  • 30 g smjör
  • 2 msk. síróp
  • 1 dl rjómi

Aðferð:

  1. Setjið allt í pott og bræðið sam­an.
  2. Sós­an er bor­in fram heit. 
  3. Upp­lagt er að bera fram fersk ber eft­ir smekk ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert