Ásthildur Huber ljósmóðir á heiðurinn af fyrsta vikumatseðlinum á nýju ári sem er afar viðeigandi þar sem hún leggur mikla áherslu á hollt og gott mataræði fyrir líkama og sál. Ásthildur á líka heiðurinn af öllum uppskriftunum sem eru hver annarri girnilegri til að njóta í upphafi ársins.
Ásthildur lærði næringarráðgjöf í Þýskalandi, fyrst til að hjálpa konum með rétt mataræði á meðgöngu sem þróaðist síðan meira út í mataræði á breytingaskeiðinu. Vikumatseðillinn þessa viku er því hollur og góður fyrir alla fjölskylduna en sérstaklega mikilvægur fyrir konur sem eru að komast á eða eru á besta aldri eins og Ásthildur vill frekar kalla breytingaskeiðið. Í lok febrúar verður Ásthildur ásamt Steinunni Zophiansdóttur ljósmóður og breytingaskeiðsráðgjafa, Lindu Baldvinsdóttur markþjálfa og dr.Jónu Ingibjörgu Jónsdóttir kynfræðing með sérhannað helgarnámskeið fyrir konur sem eru að koma á, eða eru á besta aldri og vilja fræðast um hvernig þær tekið á móti breytingunum sem að lífið oft skellir oft á konur á þessum aldri.
„Með réttu mataræði getum við minnkað fylgikvilla breytingaskeiðsins, komið í veg fyrir þyngdaraukningu, viðhaldið heilbrigðri húð og spornað fyrir beinþynningu og vöðvarýrnun. Eftir því sem við eldumst þarf líkaminn færri hitaeiningar en á sama tíma meira prótín til að viðhalda vöðvamassa um sem er eitt það mikilvægasta til þess að viðhalda hreysti og hreyfigetu. Það að halda þarmaflórunni í góðu jafnvægi getur haft gífurlega áhrif á geðheilsu því að seratonin framleiðslan fer að mestu fram í þörmunum en ekki í heilanum eins og áður var haldið. Plöntuestrógegn geta spornað við hitakófi og fleiri fylgikvillum breytingaskeiðsins og C-vítamín er annar mikilvægur þáttur til þess að auka og viðhalda prógestaron framleiðslu líkamans. Omega 3 fitusýrur eru sérstaklega mikilvægar fyrir heilastarfsemina ásamt B-vítamíni, við þurfum að vera viss um að fá næginlegt magn af D- og K-vítamínum til þess að viðhalda beinheilsu. Maca getur líka hjálpað við hitakóf og jafnvel aukið kynhvötina sem oft dettur niður á þessum árum. Og listinn er endalaus þannig að er margt sem við getum gert þegar að kemur mataræðinu en stundum finnst manni þetta verða of mikið og flókið. Vikumatseðill að þessu sinni bíður upp á margar mismunandi uppskriftir sem allar á einn eða annan hátt innihalda næringu sem hafa jákvæð áhrif á líkamann þá sérstaklega konur á breytingaskeiðinu,“ segir Ásthildur.
Mánudagur - Kínóagrautur
„Ef að það er einhver matur sem ég hugsa til baka í æsku þá var það grjónagrauturinn góði hjá ömmu minni. En eftir því sem ég varð eldri hef ég fundið fyrir óþægindum við það að neyta mjólkur og ekkert liðið sérstaklega vel eftir að ég hef borðað hinn týpíska grjónagraut. Mig langaði samt að upplifa þessa hlýju tilfinningu við að borða grautinn og þannig varð þessi uppskrift til.“
„Þessi grautur er ekki bara bragðgóður heldur líka einstaklega hollur og próteinríkur, auk þess sem að goji berin og kanillinn halda blóðsykrinum í jafnvægi og koma þannig í veg fyrir blóðsykurfall og þreytu. Möluðu hörfræin innhalda m.a. plöntuestrógen sem sýnt hafa fram á að geta unnið gegn hitakófi. Bæði hörfræin og valhneturnar innihalda mikið af ómega 3 fitusýrum sem eru sérstaklega góðar til að bæta inn hollri fitu sem að er mikilvæg fyrir alla starfsemi líkamans, heilastarfsemi og fyrir heilbrigða húð. Kínóa er miklu uppáhaldi hjá mér og ég reyni að skipta út hrísgrjónum fyrir kínóa hvenær sem ég get sérstaklega til þess að borða meiri prótín og trefjar sem að koma í veg fyrir að blóðsykurinn rjúki upp.“
Kínóagrautur
Aðferð:
Þriðjudagur – Grænmetis- og hnetupottréttur
„Þessi réttur er stútfullur af grænmeti og ferskum jurtum sem að er mikilvægt fyrir góða þarmaflóru.“
Grænmetis- og hnetupottréttur
Aðferð:
Miðvikudagur - Fræbrauð með gulrótum
„Brauð er eitt af mínu uppáhaldi, en því miður er það bara ekki nógu hollt og veldur oft blóðsykurssveiflum, þess uppskrift varð til þegar ég var að reyna að baka hollar múffur sem fór ekki eins og ég hafði planað en nú er þetta brauð orðið eitt af því sem við verðum alltaf að eiga heima, ég baka þetta einu sinni í viku, sker í sneiðar og set í frystinn tek það svo út og hendi í ristavélina og þá er það alltaf eins og nýbakað, sérstaklega gott með hummus og tómötum eða avókadó og feta osti. Þetta brauð er prótín og trefjaríkt, inniheldur mikið magn af plöntuestógeni og heldur blóðsykrinum alveg í jafnvægi og sérstaklega gott fyrir þarmaflóruna.“
Fræbrauð með gulrótum
Aðferð:
Fimmtudagur – Lax með spínati
„Ég veit fátt betra en að borða ljúffenga lax með góðu grænmeti eins og spínati. Þessi uppskrift er sveigjanleg og þú getur haft það eins og þú vilt.“
Lax með spínati
Aðferð:
Sósa með laxinum
Aðferð:
Föstudagur - Græn bústskál
„Helgarnar eru tíminn þar sem ég oft slaka aðeins á með mataræðið og leyfi mér eitthvað sem er ekki endilega mjög hollt, þess vegna finnst mér gott að fara inn í helgina vitandi að ég hafi verið að borða næringarríkan mat alla vikuna og þá fæ ég mér oft bústskál svona til að sigla inn í helgina. ég gæti í raun og veru borðað bústskálar í allar máltíðir og þar sem ég bý á Spáni er ég ekki mikið að elda mat á sumrin þegar það er of heitt og þá er ég oft að borða bústskálar daglega, ég passa mig á að hafa þær ekki of sætar með því að setja nóg grænmeti með í bústið og líka vera viss um að bæta fræjum og eða hnetum við til þess að fá prótín og holla fitu með.“
Græn bústskál
Aðferð:
Laugardagur - Kínóa með salatsósu
„Ég er mjög hrifin af kínóa og það er gjarnan laugardagsmaturinn minn. Kínóa er mjög prótínríkt og inniheldur amínósýrur sem að líkaminn getur ekki framleitt sjálfur en þarf nauðsynlega á að halda, og er þess vegna einn af besti plöntupróteinuppspretta sem að við getum borðað.
Kínóa
Aðferð:
Salatsósa
Aðferð:
Sunnudagur - Fyllt eggjakaka
„Einn af pirrandi þáttum breytingaskeiðsins er heilaþoka og minnisskortur. Kólín er nauðsynlegt næringarefni sem gegnir mikilvægu hlutverki við að viðhalda heilbrigðri starfsemi heilans. Kólín er er hvorki vítamín né steinefni, en samt mikilvægt næringarefni fyrir líkaman og virkar svipað amínósýrum og líka B vítamínum. Það virkar sem undanfari asetýlkólíns, taugaboðefnis sem skiptir sköpum fyrir minni og einbeitingu. Ég elska egg ekki bara af því að þau eru mjög prótínrík heldur líka af því egg eru ein besta leiðin til að fá nægilegt kólín án þess að hafa mikið fyrir því. En kólín finnst m.a. líka í nautakjöti, lifrur, lax og kjúklingalærum og í grænmeti (þó mun minna magn) eins og brokkolí og baunum. Stundum þegar ég hef ekki mikinn tíma hendi ég bara í eggjahræru í stað eggjaköku, í staðinn fyrir að snúa kökunni við hrærið allt saman á pönnunni og borðið úr lítilli skál.
Fyllt eggjakaka
Aðferð: