Aspas- og skinkulengja fullkomin í næsta pálínuboð

Brauðrétir eins og þessir hitta ávallt í mark og tekur …
Brauðrétir eins og þessir hitta ávallt í mark og tekur stutta stund að útbúa. Ljósmynd/Ingunn Mjöll

Asp­as- og skinku­lengj­an henn­ar Ing­unn­ar Mjall­ar sem held­ur úti upp­skrift­asíðunni Íslands­mjöll nýt­ur ávallt mik­illa vin­sælda.  Asp­as- og skinku­lengj­una, eða öðru nafni Aspasstykki eins og marg­ir þekkja það und­ir, er frek­ar ein­falt og fljót­legt að út­búa. Þetta er al­veg dá­sam­lega gott í hvaða veislu, sauma­klúbb og pálínu­boð sem er eða bara til að njóta með sjálf­um sér og gera sér dagamun.

Aspas- og skinkulengja fullkomin í næsta pálínuboð

Vista Prenta

Asp­as- og skinku­lengja

  • 1 stk. snittu­brauð, skorið í þrjá parta og svo í miðju eins og sjá má á mynd fyr­ir neðan
  • 1 dós asp­as (hefðbund­in stærð að dós)
  • 1 pk. skinka, eða um 200 g
  • 1 pk. skinku­myrja eða ann­ar smurost­ur eft­ir smekk
  • Paprikukrydd eft­ir smekk
  • Mozzar­ella­ost­ur eða gratínost­ur
  • Vor­lauk­ur til skrauts

Aðferð:

  1. Bræðið ost­inn á væg­um hita og bætið sam­an við safa af aspasn­um til að þynna ör­lítið eða eft­ir því sem ykk­ur þykir hæfi­legt. Passið samt að hafa þetta ekki of þunnt.
  2. Skerið skink­una í smáa bita og bætið sam­an við.
  3. Bætið síðan hluta af aspasn­um sam­an við eða eins mikið og þið viljið hafa (hægt er að nýta af­gang­inn í aspassúpu ef vill).
  4. Kryddið með paprikukryddi eft­ir smekk.
  5. Stráið svo mozzar­ella­osti eða grat­in­osti yfir og setjið inn í ofn á 180°C hita í um það bil 20-25 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn og brauðið er orðið gull­in­brúnt á lit.
  6. Skreytið að vild, berið fram heitt og njótið.
Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll
Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll
Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll
Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll
Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll
Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll







mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert