Dýrðlegt ananas carpaccio með nýárskeim

Dýrðlegt ananas carpaccio að hætti Jönu.
Dýrðlegt ananas carpaccio að hætti Jönu. Ljósmynd/Jana

Á nýju ári er svo ljúf­fengt að njóta frísk­andi rétta sem koma bragðlauk­un­um á flug. Kristjana Stein­gríms­dótt­ir heil­su­markþjálfi, ávallt kölluð Jana, gerði þenn­an dýrðlega og ný­stár­lega for­rétt á dög­un­um sem hitti svo sann­ar­lega í mark. Hér er á ferðinni an­an­as carpaccio með basil, granatepla­fræj­um, anís, chili­f­lög­um og sítr­ónu­olíu. Vel er hægt að mæla með þess­um ljúf­fenga for­rétt og upp­lagt að bjóða upp á þenn­an þegar jól­in verða kvödd. Hægt er að fylgj­ast með Jönu í eld­hús­inu á Inst­gram síðunni henn­ar hér.

Nýstárlegt og skemmtilegt.
Ný­stár­legt og skemmti­legt. Ljós­mynd/​Jana

Dýrðlegt ananas carpaccio með nýárskeim

Vista Prenta

An­an­as carpaccio að hætti Jönu

  • 1 fersk­ur an­an­as
  • ½ límónusafi og rif­inn börk­ur
  • ½ box af fersku basil, saxað gróft
  • 3-4 msk. granatepla­fræ (má líka nota blá­ber eða vín­ber)
  • 3 msk. pist­así­ur, gróft saxaðar
  • 1/​6 fersk­ur chili skor­inn í þunn­ar sneiðar eða smá af þurrkuðum chili­f­lög­ur
  • 2-3 msk. sítr­ónu­olía
  • 2-3 anís stjörn­ur
  • Örlítið gróft sjáv­ar­salti

Aðferð:

  1. Skerið ysta lagið af an­anasin­um og skerið svo í þunn­ar sneiðar.
  2. Raðið an­an­as sneiðunum á stór­an disk.
  3. Skreytið svo með rest­inni með hrá­efn­inu með því í að dreifa því fal­lega yfir an­an­as-sneiðarn­ar.
  4. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert