Eins og hefð er uppskrift fyrir helgarbaksturinn úr smiðju bakarans Árni Þorvarðarsonar sem einnig er kennari við Hótel- og matvælaskólann. Að þessu sinni deilir hann með lesendum uppskrift að ítölskum brauðstöngum sem bera heitið Grissini og passa til að mynda einstaklega vel á ítalska veisluplatta með ostum, hráskinku, pylsum og ólífum. Nú er fram undan handboltaveisla á skjánum þar sem EM er komið á fullt og þá er lag að töfrar fram kræsingar til að bjóða upp á til að njóta með horft er á strákana okkar keppa. Eða í næsta partí eða matarboði.
Grissini er ómissandi á matarborð Ítala þar sem ítölsku brauðstangirnar eru fastur fylgihlutur með kjöti og ostum eða jafnvel eitt og sér. Grissini hefur verið hluti af ítalskri menningu í meira en 3.000 ár. Grissini er búið til með einfaldri uppskrift sem inniheldur hveiti, ger, vatn og ólífuolíu. Úr hráefnunum er búið til deig sem síðan er mótað í þunnar pylsur og teygt út. Oft er bætt við sesamfræjum og kryddjurtum og síðan eru þau sett í ofninn þar til þau verða stökk.
Í kjölfar verðbólgutímabils á Ítalíu fóru bakarar að framleiða brauð í smærri útgáfum en áður. Fólk fór þá að taka upp á því að kalla brauðið „grissino“ sem á ítölsku þýðist sem smærri. Grissini á sér áhugaverða sögu sem gaman er að fræðast um og eru sögurnar fjölbreyttar eins og þær eru margar.
Grissini ítalskar brauðstangir
Aðferð: