Hér er hin fullkomna orkubomba, stúttfull að góðri næringu fyrir líkama og sál.
Ljósmynd/Sölufélag garðyrkjumanna
Þessi orkubomba kemur úr smiðju Margrétar Leifsdóttur heilsumarkþjálfa og heitir Atvinnumaðurinn. Þetta er hin fullkomna bomba fyrir þá sem eru lengra komnir í hollustu drykkjunum og þrá í enn meiri orku úr morgunþeytingnum. Ef ykkur langar að hefja daginn á alvöru orku þá er þetta drykkurinn.
Atvinnumaðurinn
- 1 grænt íslenskt potta- eða pokasalat
- 2 stönglar sellerí með laufunum
- 2 meðalstórar gulrætur
- ½ gúrka
- ½ rófa
- 1 avókadó
- 2,5 cm engifer
- 2 græn epli
- 0,5 l kalt vatn og handfylli klakar
Aðferð:
- Allt sett í blandara og blandað vel.
- Hellið og stórt og gott glas og njótið.