Á þessum árstíma er ekkert betra en góðir drykkir sem rífa í og fara á flug með bragðlaukana. Hér er uppskrift að dásamlegum kaffilatte sem býður upp á einstaka upplifun í hverjum sopa. Þetta er kaldur eldpipar og súkkulaðilatte sem er í senn frískandi, sætur og rífur aðeins í.
Súkkulaðilatte með eldpipar
- Tvöfaldur espresso – Lavazza Rossa
- 100 mlmjólk
- 15 ml súkkulaðisíróp eða brætt súkkulaði
- 15 ml eldpiparsíróp (sjá uppskrift hér fyrir neðan)
- Ísmolar eftir smekk
- Rjómi
- Vanillusíróp eða vanilludropar
Aðferð:
- Útbúið eldpiparsíróp með því að sjóðasaman jafnt hlutfall af sykri og vatniásamt eldpipardufti eftir smekk.
- Bætið ísmolum, kaffi, sírópum og mjólk í kokteilhristara og hristið saman.
- Hellið blöndunni í glas með ísmolum.
- Skreytið með vanillubættum, þeyttumrjóma og eldpipardufti eftir smekk.