Hið klassíska ostasalat

Hið klassíska ostasalat sem kemur úr smiðju Ingunnar Mjallar.
Hið klassíska ostasalat sem kemur úr smiðju Ingunnar Mjallar. Ljósmynd/Ingun Mjöll

Osta­salöt hafa rutt sér til rúms á sæl­kera­borðum lands­manna og njóta mik­illa vin­sælda. Fjöl­marg­ar út­gáf­ur af osta­salöt­um er að finna nú orðið og öll bragðast þau ótrú­lega vel. Hér er upp­skrift að hinu klass­íska osta­sal­ati þar sem ost­arn­ir, paprik­urn­ar og vín­ber­in leika aðal­hlut­verkið og kem­ur upp­skrift­in úr smiðju Ing­unn­ar Mjall­ar sem held­ur úti upp­skrifta- og lífs­stílssíðunni Íslands­mjöll. Þetta osta­sal­at á vel við í næsta boði, hvers kyns boð sem það er og er það full­komið í næsta sjón­varps­partí, eins og EM-par­tí­in sem fram und­an eru.

Hægt er að bera ostasalatið fram með snittubrauði, súrdeigsbrauði og …
Hægt er að bera osta­sal­atið fram með snittu­brauði, súr­deigs­brauði og góðu kexi að eig­in vali. Ljós­mynd/​Ing­unn Mjöll

Hið klassíska ostasalat

Vista Prenta

Hið klass­íska osta­sal­at

  • 1 stk. Mexikóost­ur
  • 1 stk. Papriku­ost­ur
  • 1 stk. rauð paprika
  • 1 stk. græn paprika
  • 1 lítil dós an­an­asbit­ar
  • 5 cm bút­ur af blaðlauk (púrru­lauk)
  • 1 dós sýrður rjómi (250 g)
  • 150 g létt majónes
  • Vín­ber eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera ost­ana í litla bita.
  2. Skerið síðan paprik­urn­ar tvær niður í litla bita.
  3. Sneiðið blaðlauk­inn í litl­ar sneiðar.
  4. Skerið vín­ber­in niður, upp­lagt er að sneiða hvert vín­ber í hálft, þvers­um.
  5. Setjið sýrðan rjóma og maj­ónes sam­an í skál og hrærið vel sam­an.
  6. Bætið osta­bit­un­um út í og blandið vel sam­an.
  7. Bætið síðan papriku­bit­un­um og blaðlaukssneiðum sam­an við og blandið vel sam­an.
  8. Opnið an­an­as­dós­ina og hellið an­anassaf­an­um af.
  9. Bætið smá­veg­is af an­an­asbit­um sam­an við, en þið þurfið ekki að nota alla frek­ar en þið viljið.
  10. Loks bætið við vín­berj­um eft­ir smekk.
  11. Berið fram með góðu kexi eða snittu­brauði. Mjög gott er að fá sér osta­sal­at ofan á hollt og gott frækex líka.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert