Hér er einn æðislegur þeytingur með bláberjum og engifer sem kemur úr smiðju Gwyneth Paltrow sem Kristjana Steingrímsdóttir heilsumarkþjálfi, ávallt kölluð Jana, fann á netinu og varð að prófa. Uppskriftina fann Jana á heimasíðu hennar Goop og heldur Paltrow mikið upp á þennan drykk.
„Þetta er mjög nærandi og hressandi þeytingur. Bláberin eru full af andoxunarefnum, C -vítamíni og trefjum og avókadóið gefur góðar fitur og E- vítamín, engiferið er hreinsandi og bólgueyðandi, svo þetta er súper góður þeytingur,“ segir Jana.
Jana heldur úti Instagram-síðu þar sem hún deilir með fylgjendum sínum uppáhaldsuppskriftum sem sjá má hér.
Bláberja og engifer-þeytingur Gwyneth Paltrow
Fyrir 1
Aðferð: