Edamame-baunaréttur sem rífur í

Frumlegur og bragðgóður réttur með edamame baunum með chilli, hvítlauk …
Frumlegur og bragðgóður réttur með edamame baunum með chilli, hvítlauk og sesamfræjum. Ljósmynd/Sjöfn

Þess­ar eda­mame baun­ir eru hreint sæl­gæti, svo ljúf­feng­ar og bragðgóðar. Þessi rétt­ur slær ávallt í gegn og iðulega kalla mat­ar­gest­ir eft­ir upp­skrift­inni. Það er svo gam­an að bera þær fram og skreyta kring­um þær. Marg­ir vita ekki hvað edam­ame baun­ir eru í raun og veru en þær eru fræ­belg­ur sem lít­ur út eins og stór­ar græn­ar baun­ir með litlu fræi inni. Hægt er að borða þær eins og þær eru eða út­búa á marg­vís­leg­an hátt til að bera fram ein­ar sér, sem for­rétti eða bjóða upp á þær sem meðlæti. Sér­stak­lega með Suður- am­er­ísk­um mat og asísk­um mat. 

Baun­irn­ar eru borðaðar inn­an úr belgn­um og belgn­um síðan hent. Því er oft gott að hafa sér disk til hliðar fyr­ir belg­inn. Einnig er gam­an að bera þenn­an rétt fram með prjón­um og skreyta með heil­um chilli pip­ar og límónu­bát­um

Stút­full­ar af próteini

Eda­mame baun­irn­ar er að þær eru bæði holl­ar og ljúf­feng­ar, stút­full­ar af próteini og henta mörg­um meðal ann­ars þeim sem eru veg­an. Einnig inni­halda þær heil­brigt magn af fitu, sem ger­ir þær  góðri upp­sprettu til að byggja upp vöðva á sama tíma og lík­ams­fita minnk­ar.

Baun­irn­ar eru seld­ar frosn­ar í pok­um í flest­um mat­vöru­versl­un­um lands­ins og því er kær­komið að eiga ávallt poka í fryst­in­um sem hægt er að grípa í þegar töfra þarf fram sæl­kera­rétt á auga­bragði.

Edamame-baunaréttur sem rífur í

Vista Prenta

Eda­mame baun­ir með chilli, hvít­lauk og ses­am­fræj­um

  • 1 pk frosn­ar Eda­mame baun­ir (500 g)
  • 2-3  litl­ir hvít­lauk­ar, saxaðir (þess­ir í hvítu körf­unni)
  • 2 stk. fersk­ur rauður chilli pip­ar, saxaður
  • 1-2 tsk. chilli flög­ur
  • Ses­am­fræ eft­ir smekk, ristuð (kaupa óristuð)
  • Svart­ur pip­ar eft­ir smekk
  • Gfar salt­flög­ur eft­ir smekk
  • Ólífu­olía til steik­ing­ar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að rista ses­am­fræ­in og hafið magn eft­ir eft­ir smekk, tek­ur ör­stutta stund.
  2. Setjið ses­am­fræ­in í skál og takið til hliðar.
  3. Setjið síðan vatn í pott og látið sjóða.
  4. Þegar suðan er kom­in upp hellið Eda­mame baun­un­um í vatnið og stráið ör­litlu salt­flög­um yfir og látið sjóða í um það bil 2-3 mín­út­ur.
  5. Hellið vatn­inu af baun­un­um gegnum sigti.
  6. Hitið pönnu með ólífu­olíu og náið góðum hita.
  7. Þegar ólífu­olí­an er orðin heit setjið þá saxaða hvít­lauk­inn og chilli pip­ar­inn út á pönn­una og steikið þar til hvít­lauk­ur­inn og chilli pip­ar­inn eru orðnir mjúk­ir.
  8. Bætið þá baun­un­um við og steikið.
  9. Leyfið baun­um síðan að malla aðeins sam­an við.
  10. Bætið loks við ses­am­fræj­un­um.
  11. Kryddið í lok­in með chilli flög­um, svört­um pip­ar og grófu salti, fal­legt að vera með svart­ar salt­flög­ur.
  12. Berið eda­mame fram á fal­leg­um disk eða skál og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert