Eins og hefð er fyrir er uppskrift fyrir helgarbaksturinn á föstudagsmorgnum og að þessu sinni kemur uppskriftin í smiðju Guðrúnar Erlu Guðjónsdóttir bakara að kryddköku sem fullkomið er að bjóða upp á með helgarkaffinu.
Guðrún er 23 ára gömul og er í konditornámi í Danmörku og klárar í ágúst. Hún starfar sem konditornemi í Mosfellsbakarí og hef unnið þar síðan árið 2018.
Það eru búnar að vera miklar annir hjá Guðrúnu síðastliðnar vikur og mánuði þar sem hún er í óðaönn að klára sveinsprófið sitt.
„Ég er einmitt að fara út núna til Danmerkur og að ljúka næstsíðustu önninni minni við skólann sem eru þrjár vikur. Annars er ég á fullu að undirbúa mig fyrir sveinsprófið sem ég tek í ágúst.“
Guðrún deilir hér með lesendum uppskrift að kryddköku sem hún fékk frá góðum vini sínum. „Þetta er uppáhalds bakkelsið hennar ömmu minnar, og mér datt einmitt í hug að gera þessa uppskrift og fara síðan með kökuna til hennar í smá kaffi og spjall. Þessa uppskrift gaf góður vinnufélagi minn mér sem er hættur að baka í dag. Áður en hann hætti að vinna gaf hann mér heilan helling af sínum gömlu uppskriftum. Þetta er ein af þeim mörgum sem ég fékk frá honum,“ segir Guðrún sem nýtur þess að baka og gleðja fólkið sitt og viðskiptavini með nýbökuðu bakkelsi og kræsingum.
Kryddkaka
1 formkaka
Til skraut ef vill:
Aðferð: