Húsó-grillpinnar sem létta lundina

Húsó-grillpinnnarnir eru girnilegir með grískri jógúrtsósu, fersku salati og grjónum.
Húsó-grillpinnnarnir eru girnilegir með grískri jógúrtsósu, fersku salati og grjónum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eins og hefð er fyr­ir á laug­ar­dags­morgn­um á mat­ar­vef mbl.is þá er það Húsó-upp­skrift úr hinu fræga eld­húsi í Hús­stjórn­ar­skól­an­um við Sól­valla­götu en þar eru mörg leynd­ar­mál geymd sem snúa að mat­ar­gerð og bakstri. Að þessu sinni deil­ir skóla­meist­ar­inn Marta María Arn­ars­dótt­ir upp­skrift að girni­leg­um grillpinn­um, ann­ars veg­ar með nauta­kjöt og græn­meti og hins veg­ar með svína­kjöti og græn­meti. Marta María mæl­ir með að bera grillp­inn­anna fram með fersku sal­at með ristuðum sól­blóma­fræj­um og grískri jóg­úrtsósu með kryddi.

Þegar Marta María er spurð hvort það sé ekki of mik­il bjart­sýni að grilla þessa dag­ana miðað við veðurfar seg­ir hún svo ekki vera. Nú sé ein­mitt lag að lífga upp á til­ver­una og skella kjöti á grillið og fara í Pol­lýönnu leik. Ímynda sér að sum­arið sé að koma og létta lund­ina.

Er ekki lag að láta sem sumarið sé í nánd …
Er ekki lag að láta sem sum­arið sé í nánd og skella kjöti á grillið? Það má láta sig dreyma. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Húsó-grillpinnar sem létta lundina

Vista Prenta

Húsó-grillp­inn­ar

Fyr­ir 4

  • 500 g marín­eraður nauta­vöðvi, nauta­lund eða file snyrt og skorið í bita (upp­skrift að krydd­leg­in­um hér fyr­ir neðan)
  • 500 g marín­eruð svína­lund snyrt og skor­in í bita (upp­skrift að krydd­leg­in­um hér fyr­ir neðan)
  • 1 pk kokteilpyls­ur eða skorn­ar pyls­ur.
  • 1 bréf bei­kon, ½ sneið vaf­in utan um pyls­urn­ar.
  • 1 gul paprika, skor­in bita
  • 1 rauð paprika, skor­in í bita
  • An­an­as skor­inn í bita, magn eft­ir smekk
  • 1 stk. rauðlauk­ur skor­inn í báta
  • 250 g svepp­ir skorn­ir í bita
  • 1 box kokkteil­tóm­at­ar

Krydd­lög­ur á svína­kjöt

  • 2 msk. góð olía
  • 4 tsk. Dijon sinn­ep
  • 2 hvít­lauksrif, söxuð/​mar­in
  • ½ tsk. timí­an
  • nýmalaður svart­ur pip­ar eft­ir smekk
  • 3 msk. BBQ sósa (org­inal)

Krydd­lög­ur fyr­ir nauta­kjöt

  • 4 msk. góð olía
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. rós­marín
  • Nýmalaður svart­ur pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að marín­era kjötið og látið liggja í marín­er­ing­unni í klukku­stund.
  2. Raðið hrá­efn­inu á grillp­inna með græn­met­inu, gerið ann­ars veg­ar grillp­inna með nauta­kjöt og hins veg­ar með svína­kjöti.
  3. Grillið á útigrilli eða í bak­arofni stillt á grillstill­ingu.
  4. At­hugið svína­kjötið þarf lengri eld­un­ar­tíma en nauta­kjötið.
  5. Berið grillp­inn­anna fram með góðu fersku sal­ati með ristuðum sól­blóma­fræj­um, soðnum villi­hrís­grjón­um og jóg­úrtsósu. 

Grísk jóg­úrtsósa m/kryddi

  • 300 g grísk jóg­úrt
  • 2 msk. maj­ónes
  • 1 ½ msk. hlyns­íróp
  • 1  msk. sítr­ónusafi
  • 1 hvít­lauks­geiri, mar­inn
  • 2 tsk. óreg­anó
  • 1 tsk. tim­i­an
  • Salt og nýmalaður pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efnið sam­an í skál og hrærið vel sam­an.
  2. Setjið í kæli í minnsta kosti klukku­stund. 

Ristuð sól­blóma­fræ á ferskt sal­at

  • 100 g sól­blóma­fræ
  • 1 msk. tam­arisósa

Aðferð:

  1. Hitið þurra pönnu vel, ristið fræ­in á pönn­unni þar til þau hafa fengið gyllt­an lit hreyfið þau reglu­lega á pönn­unni.
  2. Hellið tam­arisós­unni á pönn­una og látið hana síast inn í fræ­in.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert