Stál, keramik og viður í forgrunni

Stella Birgisdóttir innanhúshönnuður hannaði þetta glæsilega eldhús í samráði við …
Stella Birgisdóttir innanhúshönnuður hannaði þetta glæsilega eldhús í samráði við eigendur. Samsett mynd

Stella Birg­is­dótt­ir inn­an­húss­hönnuður og ann­ar eig­andi Bét­on Studio ásamt Hildi Árna­dótt­ur arki­tekt hannaði þetta glæsi­lega eld­hús fyr­ir hjón­in Hrafn­hildi og Bjarka sem búa við Litlakrika í Mos­fells­bæ. Þegar kem­ur að því að hanna eld­hús finnst Stellu skipta miklu máli að flétta sam­an fag­ur­fræðinni og nota­gild­inu og aðlaga rýmið að þörf­um eig­enda.

Keramikflísarnar koma afar vel út í eldhúsinu og stílhreint yfirbragð …
Kera­mik­flís­arn­ar koma afar vel út í eld­hús­inu og stíl­hreint yf­ir­bragð er yfir öllu. Eyj­an stækk­ar rýmið og eyk­ur nota­gildið í eld­hús­inu. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Fal­leg og heild­stæð mynd

Eld­húsið var hannað 2022 í sam­ráði við hús­ráðend­ur. Hrafn­hild­ur og Bjarki vildu eld­hús þar sem vinnuplássið væri í for­grunni og hugað væri að þeirra þörf­um. Eyj­an stækk­ar rýmið til muna og nýt­ist vel fyr­ir alla fjöl­skyldumeðlimi. Þegar kom að efn­is­vali og lit var svart­ur viður, ryðfrítt stál og kera­mik­flís­ar í fyrsta sæti. Efniviður­inn sem varð fyr­ir val­inu, stálið, kera­mikið og viður­inn flæða afar vel sam­an og úr varð fal­leg og heildstæð mynd,“ seg­ir Stella.

Stílhreinn glæsileiki í fyrirrúmi.
Stíl­hreinn glæsi­leiki í fyr­ir­rúmi. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son
Fáir en fallegir hlutir prýða eldhúsið. Svarti viðurinn kemur vel …
Fáir en fal­leg­ir hlut­ir prýða eld­húsið. Svarti viður­inn kem­ur vel út á móti ljósu kera­mik­flís­un­um og ryðfría stál­inu. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son
Fallegur og stílhreinn eldhúsvaskur.
Fal­leg­ur og stíl­hreinn eld­hús­vask­ur. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son
Hver hlutur á sinn stað í eldhúsinu.
Hver hlut­ur á sinn stað í eld­hús­inu. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert