Hin geðþekka leikkona Emma Watson sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í Harry Potter kvikmyndunum þar sem frægðarsól hennar náði mikilli hylli. Nú hefur hún haslað sér völl í vínbransanum og stofnað vínframreiðslu og framleiðir nú gintegundina Renais í samstarfi við yngri bróður sinn Alex Watson. Segja má að þetta sé ekki klassískt London Dry gin úr einiberjum. Renais ginið er ræktað í Chablis-vínhéraðinu í norðurhluta Bourgogne-héraðsins og í framhaldi eimað í Englandi. Ginið er búið til úr endurnýttum vínpressuðum þrúgum frá vínbúgarði fjölskyldu þeirra systkina. Hægt er að fylgjast með systkininum á Instagram síðu Renais hér.
Það kann að vera að Watson sé ný í heimi ginsins, en fjölskylda hennar hefur langan bakgrunn í franskri víngerð. Faðir systkinanna, Chris Watson, gróðursetti Domaine Watson vínekrurnar fyrir þremur áratugum. Árið 2002 náði hann öðru sæti sem besti sjálfstæði Chablis ræktandinn og vann Medaille d'Argent og varð í kjölfarið sendiherra Chablis í Bretlandi. Bróðir Emmu, Alex, hefur starfað í áratug í drykkjarvöruiðnaðinum, þar á meðal hjá drykkjarrisanum Diageo.
Domaine Watson fjölskyldu vínbúgarðurinn samanstendur af sjö litlum víngörðum sem liggja þétt saman í hlíðum kalksteinshæða Chablis og Irancy. Víngarðurinn er fullur af hefð og fjölskylduástríðu. Bæði Domain Watson Chablis vínin og Renais ginið eru í uppáhaldskokteilum Emmu Watson. Hér einn af hennar uppáhalds sem ber einfaldlega heitið Emma Spritz kokteill.
Emma Spritz kokteill
Aðferð: