Á köldum og dimmu dögum er ekkert betra en að ylja sér við heita og ljúffenga drykki. Hér er uppskrift að undursamlega góðu hunangs- og möndlu latte sem býður upp á ljúffenga bragðupplifun og gleður sálina.
Hunangs- og möndlu latte
- Tvöfaldur espresso – Lavazza Qualità Oro
- 100 ml möndlumjólk
- 15 ml hunangssíróp
Aðferð:
- Útbúið hunangssíróp með því að hita saman jafnt hlutfall af hunangi og vatni.
- Lagið kaffið í stóran bolla.
- Bætið sírópi saman við.
- Flóið mjólkina og hellið yfir kaffið.
- Gætið þess að hita mjólkina ekki of mikið, eða að hámarki 55-65°C.
- Eigið notalega stund með kaffibollann og njótið.