Nýstárlegar Bix-pönnukökur sem steinliggja

Ómótstæðilega fallegur pönnukökustafli sem á vel við þegar gera á …
Ómótstæðilega fallegur pönnukökustafli sem á vel við þegar gera á vel við sig. Ljósmynd/Weetabix

Þeir sem hafa heils­una í for­grunni hafa flest all­ir gert pönnu­kök­ur úr haframjöli fyr­ir helgar­bröns­inn eða bara fyr­ir morg­un­verðinn áður en haldið til vinnu eða skóla. Núna er hægt að hvíla haframjölið og breyta til með Oati­bix. Hér kem­ur upp­skrift af neglu sem tek­ur aðeins kort­er að gera, sem er akkúrat tím­inn sem það tek­ur til að sjóða egg sam­hliða og steikja bei­kon í ofn­in­um. Þess­ar pönnu­kök­ur eiga vel við  íþrótta­skól­ann eða morg­un­göngu­túr­inn eða áður haldið er í vinn­una.

Barn­væn upp­skrift

Þessi upp­skrift er sér­stak­lega barn­væn, því gam­an er fyr­ir krakk­ana að mylja bixið. Einnig líka til­val­in fyr­ir mak­ann til að græja með börn­un­um fyr­ir konu­dag­inn sem fram und­an er á sunnu­dag­inn 25. fe­brú­ar næst­kom­andi og bera fram á morg­un­verðarbakka upp í rúm. Ilm­ur­inn er svo lokk­andi.

Ný­stár­leg­ar Bix-pönnu­kök­ur sem stein­liggja

Vista Prenta

Ný­stár­leg­ar Bix-pönnu­kök­ur

  • Fyr­ir 3
  • 2 Bix Oati­bix
  • 2 egg
  • 1 ban­ani
  • 120 g hveiti að eig­in vali
  • 150 ml mjólk
  • ½ tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð:

  1. Hrærið egg­in þar til þau verða ljós.
  2. Myljið Oati­bixið í skál.
  3. Blandið mulið Oati­bix, eggj­un­um og öllu öðru hrá­efni sam­an.
  4. Hitið pönnu á lág­um hita.
  5. Eldið hverja pönnu­köku fyr­ir sig með því að bæta smá smjöri og olíu á pönn­una.
  6. Steikið hvora hlið í nokkr­ar mín­út­ur þar til pönnukakan er orðin svo­lítið brún og stökk
  7. Berið fram með fersk­um ávöxt­um og sírópi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert