Hvernig væri að töfra fram ljúffengar kræsingar tilefni konudagsins?

Berglind Hreiðars töfrað fram þessar dýrindis bruschettur með pestó og …
Berglind Hreiðars töfrað fram þessar dýrindis bruschettur með pestó og burrata í tilefni þess að konudagurinn er fram undan. Samsett mynd

Konu­dag­ur­inn er hand­an við hornið, sunnu­dag­inn 25. fe­brú­ar næst­kom­andi og hjá mörg­um er það sann­kallaður dek­ur­dag­ur. Konu­dag­ur er fyrsti dag­ur fornn­or­ræna mánaðar­ins góu, sem er sunnu­dag­ur­inn í átjándu viku vetr­ar á milli 18. og 24. fe­brú­ar. Við höf­um haldið upp á konu­dag­inn í ára­tugi og er hann einn af þjóðleg­um tylli­dög­um okk­ar. Sú hefð að menn gefi kon­um blóm í til­efni konu­dagsinns virðist hafa haf­ist um miðjan sjötta ára­tug síðustu ald­ar en þá tóku blóma­sal­ar að aug­lýsa konu­dags­blóm. Gam­an er að geta þess að Þórður á Sæ­bóli í Kópa­vogi mun hafa verið upp­hafsmaður þess en fyrsta blaðaaug­lýs­ing­in sem hef­ur fund­ist frá Fé­lagi garðyrkju­bænda og blóma­versl­ana er frá ár­inu 1957.

Gleðjum kon­urn­ar í lífi okk­ar á konu­dag­inn

Á þess­um degi er til­efni til að gleðja kon­urn­ar í lífi okk­ar. Hægt er að gera það á marg­vís­leg­an hátt, bæði með fal­leg­um gjöf­um og upp­lif­un­um sem búa til góðar minn­ing­ar. Til að mynda er fjöldi veit­ingastaða með ómót­stæðileg sæl­kera­til­boð í til­efni konu­dags­ins og bjóða fram sæl­kera­máltíð í til­efni dags­ins. Blóma­sal­ar eru í sínu fín­asta pússi og galdra fram hina feg­urstu blóm­vendi. Bak­ar­arn­ir leggja sig fram að baka konu­dags­kök­una og aðra róm­an­tísk­ar kræs­ing­ar sem eiga eft­ir bráðna í munni og fjöl­marg­ar versl­an­ir og galle­rí bjóða upp á fal­leg hand­verk, hönn­un­ar­vör­ur, vandaðar flík­ur og hvað eina sem hug­ur­inn girn­ist. Það sem er mest spenn­andi við þenn­an dag er að geta komið kon­unni á óvart með spenn­andi upp­lif­un, eins og morg­un­verð í rúmið, í ljúf­feng­an dög­urð, róm­an­tísk­an kvöld­verð heima eða setja upp skemmti­legt hlaðborð af smakk­rétt­um sem bráðna í munni. Það eru marg­ar leiðir fær­ar til að gleðja og tjá ást sína á ein­læg­an og eft­ir­minni­leg­an hátt. Hvað sem menn velja til að gleðja kon­urn­ar í líf­inu sínu er það fyrst og fremst kær­leik­ur­inn sem skipt­ir máli. „Líf án kær­leika er eins og ávaxta­tré sem hvorki ber blóm né ald­in.“ (Kahil Gi­br­an)

Ljúf­feng­ar bruschett­ur með burrata í til­efni dags­ins

Í til­efni þess að konu­dags­ins út­bjó Berg­lind Hreiðars köku- og mat­ar­blogg­ari hjá Gotte­rí og ger­sem­ar dýrðleg­ar bruschett­ur með pestó og burrata sem all­ir ættu að ráða við og upp­lagt að gera um helg­ina. Berg­lind er þekkt fyr­ir sín­ar ljúf­fengu kræs­ing­ar og fal­lega fram­setn­ingu sem gleðja bæði augu og munn. Fleiri upp­skrift­ir fyr­ir kom­andi konu­dag munu birt­ast á mat­ar­vefn­um á morg­un og laug­ar­dag og verður helgar­bakst­ur­inn á sín­um stað á föstu­dags­morg­un og að þessu sinni helgaður konu­deg­in­um. 

Pestósnitturnar úr smiðju Berglindar Hreiðars fanga bæði auga og munn.
Pestósnitt­urn­ar úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars fanga bæði auga og munn. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

 

Hvernig væri að töfra fram ljúffengar kræsingar tilefni konudagsins?

Vista Prenta

Bruschetta með pestó og burrata

12 sneiðar

  • Súr­deigs snittu­brauð
  • Fil­ippo Ber­io Basil pestó – veg­an
  • 200 g piccolo tóm­at­ar
  • 2 hvít­lauksrif
  • 2 stk. Burrata ost­ur
  • Ólífu­olía
  • Bal­sa­mik gljái
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200°C.
  2. Skerið snittu­brauðið í sneiðar og penslið með ólífu­olíu, ristið í ofn­in­um í um 4 mín­út­ur. Takið út og leyfið að kólna niður.
  3. Smyrjið um 1 tsk. af pestó á hverja brauðsneið.
  4. Skerið tóm­at­ana niður og blandið sam­an við 1 msk. af ólífu­olíu og ½ tsk. af salti og pip­ar og rífið hvít­lauksrif­in sam­an við. Skiptið blönd­unni niður á sneiðarn­ar.
  5. Rífið næst burrata ost­inn niður og skiptið á milli sneiðanna.
  6. Setjið smá bal­sa­mik­gljáa, salt og pip­ar yfir hverja snittu.
  7. Berið fal­lega fram og njótið með góðum drykk við hönd.
Burrata osturinn er svo dásamlegur að njóta.
Burrata ost­ur­inn er svo dá­sam­leg­ur að njóta. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert